Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 35

Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 35
IDUNN Andinn frá Worms og örlög hans. 29 einsfaklingsins og skyldur hans við röddu samvizku sinnar. Þegar hann er að leggja grundvöll að kirkju sinni, þá er hann mjög frjálslyndur. Hann gefur út guðs- þjónustuform í anda hinnar nýju stefnu. En í formála tekur hann það skýrt fram, að enginn megi skilja þetta svo, að hér sé verið að setja fram lögboðið messuform. Þetta var að eins tillaga frá honum, sem hann gaf söfn- uðum sínum til að styðjast við. Hann áleit það að miklu leyíi einkamál hvers safnaðar, hvaða form hann veldi guðsþjónustum sínum. Lúther var óeiginleg öll ramma- gerð um trúarlíf manna. Hann slær engu föstu, sem hægt er að benda á sem haft á skoðanafrelsi manna. Hann er ekkert við nýjar játningar riðinn, að undan- skildu því, sem hann lagði til játningar þeirrar, sem lögð var fram fyrir ríkisþingið í Agsborg (Agsborgarjátningin). En þess ber að gæta, að þótt sú játning sé talin laga- lega bindandi með ýmsum lúterskum kirkjum, þá var hún ekki samin í þeim tilgangi, heldur sem vörn fyrir hinum nýja sið og til þess að skýra hann fyrir and- stæðingunum. A það ber að líta, að meðan Lúthers nýtur við, þá er starfsemi stefnu hans aðallega út á við. — Hún er fólgin í baráttu við hina katólsku kirkju og hið róm- verska keisaravald, sem í Karli keisara fimta sýndi sig hið fjandsamlegasta hinni nýju siðbót. Það er ekki fyrri en nokkru eftir daga Lúthers, að fylgjendum hans gefst tími til að sinna málum sínum inn á við og marka stefnu kirkjudeildarinnar með ákveðinni stefnuskrá. En um leið og á því starfi er byrjað, þá kemur það á daginn, að ekkert er til þess gert að slá upp skjald- borg til varnar skoðanafrelsi og tryggja einstaklingnum það, að hann fái þjónað guði sínum, svo sem samvizka hans býður honum. Nýja kirkjudeildin er reist á hinum

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.