Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Page 74

Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Page 74
68 Georg Brandes. IÐUNN ávalt síðan hneigðist hugur hans að þess kyns viðfangs- efnum. Hann varð hinn snjalli skýrandi snildarverkanna og æfisöguhöfundur afburðamanna á ýmsum sviðum list- arinnar. Smátt og smátt sendi hann út á markaðinn mikil verk um ýms stórmenni heimsins: Holberg, Shake- speare, Ibsen, Goethe, Voltaire, ]ulius Cæsar og Michel Angelo. Fyrir nokkrum árum kvisaðist það, að Brandes hefði í smíðum bók um Albert Thorvaldsen, en því miður hefir honum líklega ekki enzt aldur fil að Ijúka við hana. Þá er Brandcs hvarf heim aftur úr útlegðinni, árið 1883, var ástandið í Danmörku að ýmsu leyti orðið breytt honum í hag. Andrúmsloftið var léttara en verið hafði, hinn andlegi sjónhringur víðari. Það er segin saga, að vakningarstarf hans sjálfs átti ekki minstan þátt í þeirri breytingu. Isinn var brotinn; verstu erfiðleikaárin um garð gengin. Brandes hafði eignast söfnuð. Tákn um viðurkenning á starfi hans bárust nú víðs vegar að, — þó ef til vill síðast og dræmast frá hans eigin þjóð. En einnig Danir urðu að fylgja straumnum og viðurkenna mikilleik hans. En nú tekur breyting sú í hugsunarhætti og skoðun- um, er um undanfarin ár hafði verið að grafa um sig í sái hans, að koma æ greinilegar í ljós. Aður hafði hann gert þá kröfu til skáldskapar og lista, að þau tæki til meðferðar viðfangsefni tímans, að þau beittu sér fyrir hugsjónum oa hefðu ákveðna stefnu. Nú tók hann að aðhyllast frekar hið listræna viðhorf: listin listarinnar vegna, listin alfrjáls og sjálfri sér nóg. I stjórnmálaskoð- unum hafði hann verið eindreginn lýðvaldssinni. Nú var hann orðinn vantrúaður á að frelsi mannanna væri bezt borgið með þeim hætti. Nú var hann »aristokrat« og hallaðist frekar að stjórn höfðingjanna, hinna vitru og sterku. A sviði félagsmála hafði hann fylgt hagrænum

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.