Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 83

Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 83
IDUNN Georg Drandes. 77 á, en allir þó verið að búa sig undir. Oft hafði verið rætt um þessa styrjöld, er koma myndi; margir höfðu spáð hraklega. En fáir eða engir þessara spámanna dirfðust þó að trúa á sínar eigin spár. Svo fjarlægur var þessi möguleiki heilbrigðri skynsemi, svo langt fyrir neðan mannlegt og menningarlegt velsæmi, að menn neituðu að trúa á hann. En nú var þetta óhugsanlega og ómögulega fram komið sem áþreifanleg staðreynd. Veröldin var skyndilega orðin brjáluð. Stóru vargarnir rifust og bitust; smárakkarnir lögðu niður skottin og hlupu í felur. Skelfingin, sem greip menn í bili, stóð þó ekki lengi. Mennirnir eru meistarar í því, að laga sig eftir aðstæð- unum. Innan skamms var brjálæðið orðið »normalt« ástand. í hlutlausu löndunum gekk hver til síns akurs eða sinnar kaupsýslu, sem blómgaðist betur en nokkru sinni fyr. Heilbrigðri skynsemi var stunginn svefnþorn. Velsæmistilfinningin dó drotni sínum. Glamuryrðin fyltu Joftið eins og mývargur á heitum sumardegi. Eins og hér væri nokkur ástæða til að skammast sín fyrir hönd menningarinnar eða mannkynsins! Þvert á móti! Styrjöldin var réttmæt; þetta var stríð réttlætis gegn rangsleitni, stríð gegn harðstjórn og kúgun, stríð fyrir frelsi og sjálfsákvörðunarrétti þjóðanna, stríð gegn styrjaldaandan- um þýzka, stríð í þágu friðarins o. s. frv. Og þjóðirnar voru dregnar í dilka — á svipaðan hátt og sagt er að gert verði á dómsdegi: sauðirnir til hægri, hafrarnir til vinstri. Þessi skifting var einkar handhæg °9 átti miklum vinsældum að fagna. Hvar voru þeir, meðan þessu fór fram — höfðingj- arnir í ríki andans, leiðtogarnir, sem talað gátu af mynd- ugleik? Hvar voru vísindamennirnir, prestarnir, skáldin, ^ennararnir, spámennirnir? Létu þeir ginnast af lygun-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.