Frjáls verslun - 01.04.2001, Síða 42
BflUGSVELDIÐ ÞENST ÚT
haust hætti hann hjá Olís eftir skamma dvöl
og réðst til Baugs sem framkvæmdastjóri
Lyfjabúða sem á þeim tíma ráku lyijaverslan-
ir undir heitinu Apótekið. Um áramótin sam-
einuðust Lytjabúðir og Lyija undir heiti Lyiju
og er Arni þar nú stjórnarformaður. Mikið
mæðir á Arna Pétri núna í hlutverki fram-
kvæmdastjóra matvörusviðs Baugs því undir
hans svið heyra Bónus, Nýkaup, 10-11, Að-
föng og verslanir Lyiju.
Skemmtileg mynd í vöruskemmunni. Frá vinstri: Jón Asgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, Jón Scheving Thorsteinsson, framkvœmdastjóri þróunarsviðs, Jón Björnsson,
framkvæmdastjóri sérvörusviðs, Arni Pétur Jónsson, framkvœmdastjóri matvörusviðs,
og Tryggvi Jónsson, aðstoðarforstjóri Baugs, sem situr við stjórnvölinn í lyftaranum og
er tilbúinn til að lyfta félögum sínum upþ.
JÓn flsgeir Jóhannesson En lítum betur á feril iimmmenning-
ana í framkvæmdastjórn Baugs. Jón Asgeir Jóhannesson, for-
stjóri félagsins, er 33 ára að aldri og hefur um nokkurt skeið ver-
ið einn af nafntoguðstu mönnum viðskiptalífsins. Hann útskrif-
aðist úr Verslunarskóla íslands árið 1989 og stofiiaði Bónus það
sama ár ásamt föður sínum, Jóhannesi Jónssyni. Afar lítið bar á
Jóni Asgeiri út á við fyrir hönd Bónuss fyrstu árin - þar var faðir
hans í aðalhlutverkinu. Það breyttist hins vegar um mitt árið
1998 þegar ijárfestingarfélag Bónusijölskyldunnar, Gaumur,
keypti, með Kaupþingi og FBA, iyrirtækin Hagkaup, Nýkaup og
helminginn í Bónusi og úr varð risinn Baugur. Jón Ásgeir varð
forsdóri Baugs en Jóhannes, faðir hans, dró sig út úr sviðsljós-
inu og stjórnar hann Baugi núna meira úr fjarlægð sem einn
helsti eigandi iyrirtækisins og maðurinn sem tendraði eldana
iyrir þrettán árum og hóf ævintýrið ásamt ijölskyldu sinni.
JÓn Björnsson Jón Björnsson, 32 ára, fram-
kvæmdastjóri sérvörusviðs Baugs, vakti iýrst
athygli í viðskiptalífinu iýrir um níu árum sem
markaðsstjóri Nóa-Síríusar. Hann var síðan
framkvæmdastjóri Ferskra kjötvara á árunum
1995 til 1996 er hann tók við sem innkaupastjóri
Hagkaups. Á árinu 1998 varð hann fram-
kvæmdastjóri Hagkaups og nú liggur leið hans
í starf framkvæmdastjóra sérvörusviðs Baugs.
Þess má geta að Hagkaup, Útilíf, Debenham,
Arcadia á Islandi og Arcadia á Norðulöndum
heyra undir sérvörusvið Baugs sem Jón stýrir. Jón er menntað-
ur í stjórnun frá Rider University, New Jersey í Bandaríkjunum.
Jón Scheving Thorsteinsson Jón Scheving Thorsteinsson,
38 ára, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Baugs, vakti fyrst at-
hygli í viðskiptalífmu fyrir ijórtán árum er hann varð fram-
leiðslustjóri Sólar. Hann varð síðan verksmiðjustjóri Sólar og
meðeigandi þar árið 1994 og síðan markaðsstjóri á árunum
1996 til 1997. Jón er sonur Davíðs Scheving Thorsteinssonar,
eins kunnasta manns í íslensku viðskiptalífi undanfarna ára-
tugi. Hann varð markaðsstjóri Hagkaups árið 1997 og síðan
framkvæmdastjóri þróunarsviðs Baugs um mitt árið 1998.
Jón er stærðfræðingur og með meistarapróf í aðgerðagrein-
ingu frá Stanford háskóla í Kaliforníu.
Tryggvi Jónsson Tryggvi Jónsson, 46 ára, aðstoðarforstjóri
Baugs, var um árabil einn þekktasti endurskoðandi landsins.
Hann var einn af eigendum KPMG Endurskoðunar hf. og kom
það verulega á óvart þegar hann söðlaði skyndilega um og hóf
störf sem aðstoðarforstjóri Baugs um mitt árið 1998. Því starfi
hefur hann gegnt síðan. Auk þess að vera aðstoðarforstjóri
Baugs annast hann ijármálastjórn fyrirtækisins. Tryggvi varð
viðskiptafræðingur frá Háskóla Islands árið 1981 og hlaut lög-
gildingu sem endurskoðandi árið 1984.
flrni Pétur Jónsson Árni Pétur Jónsson, 34 ára, viðskipta-
fræðingur frá Háskóla íslands, komst nokkuð ungur í sviðs-
ljós viðskiptalífsins er hann varð framkvæmdastjóri Skipaaf-
greiðslu Jes Zimsen fyrir um tíu árum. Hann gegndi síðan
starfi forstjóra Tollvörugeymslu Zimsen frá 1996 til 2000.
Snemma á síðasta ári réð hann sig til Olís og tók þar við starfi
framkvæmdastjóra markaðssviðs heildsölu Olís. En í íýrra-
Baugur í sviðsljósi fjölmiðla Óhætt er að segja að fá fyrir-
tæki hafi verið eins mikið í sviðsljósi ijölmiðla undanfarnar
vikur og Baugur. Eftir að Baugur eignaðist 20,1% í Arcadia
Group plc og meirihlutann í Bonus Stores Inc. í Bandaríkjun-
um, eignarhaldsfélags Bonus Dollar Store og Bill's Dollar
Store, stefnir í að fyrirtækið verði það langstærsta hérlendis,
með áætlaða veltu upp á um 114 milljarða á þessu ári. Þetta
skiptist þannig að um 30 milljarða velta kemur frá Baugi hér-
lendis, 30 milljarðar frá Bonus Stores Inc. í Bandaríkjunum
og 54 milljarðar frá Arcadia Group plc í Bretlandi sem veltir
um 250 milljörðum á þessu ári. Hlutdeild Baugs í áætluðum 6
milljarða króna hagnaði Arcadia fyrir skatta á yfirstandandi
rekstrarári verður um 1,2 milljarðar. Þessi stökkbreyting íýr-
irtækisins á sér ekki hliðstæðu hérlendis. Ekkert íslenskt fýr-
irtæki hefur áður farið í kaup á hlutabréfum í erlendum fýrir-
tækjum með jafn stórtækum hætti og nær fjórfaldað veltu
sína á einu bretti, hvað þá þegar verið er að tala um veltu úr
um 30 milljörðum í 114 milljarða.
Það er, og verður alltaf, erfitt að stýra stórum fyrirtækjum erlendis frá íslandi. Vissulega má ekki horfa
fram hjá því að veruleg reynsla og viðskiptatengsl á alþjóðlegum vettvangi eru núna fyrir hendi innan
Baugs - bæði í rekstri verslana og í fjárfestingum.
42