Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 82
Hjá Deloitte & Touche.
Stiginn á milli hæðanna er
mjög opinn. Fyrir ofan hann
og neðan eru litlar kaffistöðvar.
ARKITEKTUR
krefjast annars konar meðferðar, td. á gögnum. Því var farin sú
millileið að vinna bæði með skrifstofur og stærri, opin vinnu-
svæði. Allar skrifstofurnar hafa þó glervegg til að undirstrika
opin tengsl þeirra við vinnusvæðin.
KaffÍStÖð á hverri hæð Hver hæð fyrir sig er lokuð af að hluta
en inni í aðalhúsinu er stór, opinn og voldugur stigi upp á efri
hæðina í miðju vinnurýminu. „Það urðu talsverðar umræður
um þennan stiga,“ segir Jón Olafur. „Oskir komu fram um að
fella hann út til þess að nýta rýmið betur og aðeins nota aðal-
stigahúsið til að tengja hæðirnar, en svo varð mönnum ljóst að
þægindin af honum eru mikil. Við stigann, bæði uppi og niðri,
er kaffiaðstaða; lítið borð með kexi, kaffivél, bollum og fleiru
sem þarf til að mynda notalegan krók þar sem fólk getur hist og
spjallað um stund. „Við vildum hafa svona kaffistöðvar á hverri
hæð, óformlegan vettvang þar sem starfsmenn hitta aðra og
skiptast á skoðunum og hugmyndum. Við töldum þetta nauð-
synlegt í ört stækkandi öflugu
iýrirtæki." Val á efnum og litum í
húsinu miðaði að því að mynda
einfaldan, hlutlausan ramma um
nýtt fyrirtæki sem til varð úr sam-
runa þriggja og reyndar fleiri fyrir-
tækja. I anddyrinu er dökkt terr-
azzo-steingólf sem myndar hlut-
lausan bakgrunn fyrir húsgögn og
veggliti. A fundarherbergjum og
matsal er eikarparketgólf, en á
vinnusvæðum er að mestu einlitur,
grár gólfdúkur sem brotinn er upp
með innsetningu í rauðbrúnum lit
Landslag í hljóðum Loftin í hús-
unum eru mismunandi, sum úr
hörðum loftaplötum sem leiða
hljóð vel en önnur úr mjúkum og
hljóðminnkandi plötum. „Við vildum vinna með landslag í hljóð-
umhverfi og lýsingu hússins og láta fólk finna fyrir því hvar það
væri statt hveiju sinni og það réð valinu á loftaplötum. A göng-
unum eru þær harðar og það heyrist í þeim sem ganga um en
þetta myndar allt skemmtilega umgjörð um húsið sjálft þar sem
mishátt er til lofts.“ I hurðum, skápum og öðrum föstum inn-
réttingum er eik. Jón Olafur segir að þrátt fyrir að eldri húsgögn
hafi verið með mismunandi lit og áferð hafi verið lögð rík
áhersla á að nýta þau áfram. Til að forðast of mikið ósamræmi
á opnum vinnusvæðum var reynt að koma eldri skrifborðum
fyrir á skrifstofunum en tengja yfirbragð þeirra saman með nýj-
um svörtum fráleggsborðum á hverri skrifstofu. A opnu vinnu-
svæðin voru notuð húsgögn með samræmdu yfirbragði eða
keypt ný húsgögn með samræmdu útliti og ný skilrúm í bláum
lit.“ Á. Guðmundsson smíðaði skrifborðin, trésmiðjurnar Borg
á Sauðárkróki og Sérverk í Kópavogi sáu um smiði innréttinga.
Þar sem eru gardínur eru þær frá Epal og Strimlagluggatjöld-
Ljósum tölvustýrt
í öllum húsunum er Glra Instabus stýrikerfl fyrir lýsingu og gluggatjöld. Instabus er samevrópskt stýrikerfi
sem yfir 100 framleiðendur standa að og hefur þá kosti að draga úr kostnaði við miðlægar stýringar á lýs-
ingu, Ijósasenum og öðrum flóknum stýringum. Útlit á rofum og tenglum hefur fengið heitið Event og E2.
Ennréttingar í húsnæði
Deloitte & Touche að Stórhöfða 23
koma frá okkur.
Vönduð vinnubrögð
kvartett innréttingar
dúett innréttingar
sérsmíði
TRÉSMIÐJAN
BCIQ©
Söludeild innréttinga
ÁRMÚLA 23
1 08 R EYKJ AVÍ K
S í M I 588 5170
82