Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 91

Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 91
FYRIRTÆKIN fl NETINU Gestir eru boðnir velkomnir á forsíðunni. Möguleikar og tækifœri eru tíunduð. Upþlýsingar um ýmsa opinbera aðila. Verkfæri til fjárfestinga róunarstofa Austurlands er lítil stofnun, sem fæst við atvinnu- og byggðaþróun á Austurlandi. Þróunarstofan rekur flárfestingavef- inn East-Iceland.is og hefur gert í nokkra mánuði. Vefurinn er ein- göngu á ensku og með honum er Þróunarstofan komin með myndar- legan upplýsingavef, sem þjónar vel fjárfestum sem eru áhugasamir um viðskipti við fyrirtæki á Austurlandi. Markmiðið með vefnum er einmitt að fræða erlenda aðila um Austurland og þá fyrst og fremst um atvinnulífið. Gunnar Vignisson, framkvæmda- stjóri Þróunarstofunnar, segir að einn megintilgangurinn sé að „fiska hagnýt tengsl og ijármagn. Við markaðssetjum vef- inn með tilliti til þess að ná til erlendra íjárfesta og fyrirtækja sem kynnu að hafa áhuga á því að blanda sér í atvinnulífið hérna með peningum og viðskiptatengslum. Þetta er okkar verkfæri til þess.“ Viðbrögð úr Ólíkustu áttum Starfsmenn Þróunarstofunnar hafa fengið talsverð viðbrögð við vefnum úr ólíkustu áttum og algjörlega óháð landamærum eins og vera ber á Netinu því að fólk frá ýmsum löndum Asíu, Miðausturlöndum, Ameríku og Evrópu hefur verið að senda inn fyrirspurnir. „Þetta fólk er að spyijast fyrir um möguleika varðandi viðskipti. I fyrstu fyrirspurnunum, sem komu, voru menn að forvitnast um það hvers konar svæði þetta væri, hvernig land Is- land væri, hvernig viðskiptaumhverfið væri og mat okkar á Jjárfestingamöguleikum, sóknar- færum o.s.frv. Það hefur verið spurt talsvert mikið um fiskiðnað, landbúnað og rekstur tengdan þeim greinum," segir Gunnar. Á næstunni er fyrirhugað að koma upp síðu með fréttum úr austfirsku atvinnulífi og á hún að vera það sem heldur vefnum „lifandi“, eins og stundum er sagt. Einnig verður boðið upp á áskrift að fréttum. - Almennt hefur gengið erfiðlega hjá Netfyrirtækjum. Er enginn barlómur i ykkur? Gjörbreyting með Netinu „Nei, síður en svo. Við erum alveg ákveðnir í því að nýta okkur þessa tækni til hins ýtrasta. Það er hægt að fullyrða það og við erum reyndar búin að upplifa það hérna að Netið með öllum sínum möguleikum til samskipta og upplýsingamiðlunar umbyltir gjörsamlega aðstöðu okkar og möguleikum varðandi fram- þróun, hvort sem er í atvinnulífinu eða í samfélaginu almennt. Það hefur miklu meiri áhrif á svæðunum úti á landi en í borg- arsamfélögum. Eitt af því sem hefur haldið niðri framþróun i gegnum tíðina eru ijarlægðirnar og það upplýsingasvelti sem við höfum búið við. Áður en tölvupósturinn og Netið komu var aðgengi að upplýsingum og þekkingu fyrirhafnarmikið, dýrt og erfitt fyrir fólk á landsbyggðinni. Þess vegna streymdi hvorki til okkar né frá sú þekking eða reynsla sem þurfti að vera fyrir hendi til að samfélagið þróaðist á eðlileg- an og framsækinn hátt,“ svarar Gunnar og heldur áfram: „Umhverfið sem við erum að vinna í hefur gjörbreyst og sama gildir um alla okkar stöðu og framtíðarmöguleika. Framundan er endalaust samsafn af mögu- leikum og tækifærum." Heildarkostnaður við vefinn er um tvær milljónir króna og kemur ijármagnið frá Rarik og Fjárfestingastofunni. East- Iceland.is-vefurinn hefur verið markaðs- settur eftir hefðbundnum leiðum. Þróunar- stofan hefur verið í samstarfi við Fjárfest- ingastofu Islands, sem rekur íjárfestinga- vefinn Invest.is. Þá er vefurinn að sjálf- sögðu skráður á leitarvélar sem opna þannig dyr út um allan heim. Sjá einnig: In- vestis, East.is, Austur.is, Afe.is, Atvest.is og East.is. S3 Upplýsingamiðlunin á Netinu hefurgjör- bylt aðstöðu landsbyggðarinnar til fram- próunar og atvinnusköpunar. Fjárfest- ingavefurinn www.east-iceland.is ertil- raun til pess að laða að erlend viðskipti. Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Gunnar Vignisson, framkvæmda- stjóri Þróunarstofu Austurlands. Mynd: úr einkasafni flhugoverðir vefir: wwuli.vís.ís ■ www.utflutningsrQd.is ■ www.securitos.is ■ www.spegils.is • www.QftonblQdet.se • www.gomez.com ■ www.integrQ.com ■ www.ver.is • www.eskill.is • www.idno.is • www.freisting.is ■ www.eddo.is ■ www.skrQutfiskur.is 91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.