Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 54

Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 54
STJÓRNUN VINSÆLDflKÖNNUN VR Stjórnendur hafa ekki rétta mynd af viðhorfum starfs- manna sinna og virðast því vera í nokkurs konar fílabeinsturni. Mér frnnst þetta styðja niðurstöðurnar úr launakönnuninni í vetur um launa- mun kynjanna. Það er ekki meðvituð ákvörðun hjá stjórnendum að greiða mismunandi laun eftir kynferði held- ur er vinnuframlag kynjanna mis- munandi metið. Þeir virðast ekki hafa nægilega góða yfirsýn yfir sinn eigin rekstur. Þeir þurfa ef til vill að bæta upplýsingaöflun í fýrirtækinu, Stjórnendur fyrirtœkja hér á landi eru ekki jafn góðir stjórnendur og í raun minni leiötogar en þeir halda. Stefnumótun, ákvarðanataka og há laun draga ekki úr starfsöryggi þeirra eins og tíðkast erlendis. Fremur þvert á móti. Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur koma sér upp einhvers konar mæli- kvarða og mæla staðreyndir í stað þess að notast eingöngu við tilfinninguna því að hún virðist vera í þá veru að allt sé miklu betra sem snýr að þeim sjálfum og þeirra stjórnunar- háttum en starfsmennirnir telja. Stjórnendurnir virðast því vera svolítið sjálfumglaðir," segir Gunnar Páll Pálsson, hag- fræðingur hjá Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, VR. VR lét nýlega vinna fyrir sig könnun á Fyrirtæki ársins og er það í fimmta sinn sem könnunin fer fram hér á landi. Hún er unnin að bandarískri fýrirmynd en í Bandaríkjunum kem- ur út á hverju ári bókin „100 bestu vinnustaðir Bandaríkj- anna“ sem byggir á víðtækri úttekt meðal starfsmanna fjöl- margra vinnustaða. Hér á landi var könnunin unnin af Félags- vísindastofnun og var hún fýrst og fremst gerð meðal félags- manna VR. í flokki stærri fýrirtækja bar IMG þekkingarsköp- un hf. sigur úr býtum, P. Samúelsson hf. lenti í öðru sæti og Kaupþing hf. í þriðja sæti. I flokki minni fýrirtækja varð Tand- Almennir starfsmenn ur hf. hlutskarpasta fýrirtækið, annað árið í röð, þétt á eftir kom Reykja- garður hf. og loks Daníel Olafsson ehf. Hugmyndafræðin að baki Fyrir- tæki ársins er sú að mannlegi þátturinn ráði úrslitum um það hvaða fyrir- tæki skari fram úr í samkeppni. Stolt og starfsandi I könnuninni voru þátttak- endur spurðir um viðhorf sín til vinnunnar, stjórnun- ar í sínu fyrirtæki og starfsaðstöðu. Sérstaklega var spurt um traust, stolt og starfsanda. Traustið skiptist í trú- verðugleika, virðingu, launakjör og vinnuskilyrði en allt tengist þetta inn- byrðis. Trúverðugleiki er mikilvægur til að skapa traust á vinnustað, gagn- kvæm virðing ríkir innan vinnustaðarins ef traust er fyrir hendi, launakjör verða að ein- kennast af sanngirni og það sama gildir um öll vinnuskilyrði. Hverjum starfsmanni er nauðsynlegt að vera stoltur af starfi sínu til þess að honum líði vel í vinnunni og að hann sinni starfi sínu samviskulega. Góður starfsandi er mikilvægur á hverjum vinnustað og þar er líklegt að vinátta sé ríkjandi. Allt skilar þetta sér marg- falt til baka því að starfsmenn eru tryggari fyrirtækjum sem bjóða upp á gott starfsumhverfi þar sem þeir eru metnir að verðleikum og komið er til móts við þá. Mat almennra starfsmanna á sjálfum sér, starfi sínu og vinnustað Þeir eru almennt ánægðir með starf sitt. Þeim líður vel á vinnustað. Þeir eru léttlyndir, jafnlyndir, liprir og yfirvegaðir í starfi. Þeir eru stoltir af starfi og vinnustað og sýna metnað í starfi. Margir þeirra eru óánægðir með launakjör. Þeir telja að boðleiðirnar megi bæta og auka frelsi til ákvarðanatöku. Þeir eru ánægðir með umbyrðarlyndi gagnvart einkalífi. Þeir eru ánægðir með sveigjanleika í starfi. Líður vel á Vinnustað Niðurstöður könnunarinnar voru al- mennt mjög jákvæðar og kom í rauninni hvergi fram mikil óá- nægja nema þá helst hvað launakjörin varðaði. Má segja að félagsmönnum VR líði almennt vel í vinnunni og að þeir hafi mjög jákvæð viðhorf til starfsins, fyrirtækis síns og annarra kringumstæðna á vinnumarkaði. Könnunin sýnir þó áberandi mun hvað launakjörin varðaði því að stjórnendur eru mjög sáttir við launakjör sín en almennir starfsmenn eru í mörgum tilfellum mjög óánægðir. „Fólki virðist líða mjög vel á vinnustað sínum. Eg lít svo á að könnunin sýni aðeins blæbrigðamun milli viðhorfa stjórn- enda og almennra starfsmanna og þar sem munurinn er mestur felist sóknarfæri fyrir stjórnendur. Þeir geta náð betri árangri, hver í sínu fyrirtæki, með því að bæta úr þeim veik- leika sem könnunin sýnir, t.d. hvað varðar starfsanda á vinnu- stað. Með því að afla sér betri og hlutlausari upplýsinga um 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.