Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 49
Það vonast allir eftirgóðu laxveiðisumri. Sama má segja um hlutabréfamarkaðinn, það vonast allir eftW að botninum sé náð og að hann hressist
úrþessu. FV-myndir: Geir Olafsson
aðstæðna hér. Hér þyrftu margir aðilar að taka höndum sam-
an og kynna Island sem áhugaverðan kost fyrir alþjóðleg
fyrirtæki.
Utflutningsráð ætti að taka forystu í þessu máli, það er
ekki stór munur á því að selja íslenska vöru eða selja rómaða
íslenska þjónustu. Skattalækkun á fyrirtæki á örugglega eftir
að skila sér til baka, ekki bara til góða fyrir ríkisssjóð heldur
til hagsbóta fyrir ijölmarga aðra aðila.
GÚð kaup í hlutabréfum? í byrjun mars var um það rætt á
morgunverðafundi Verslunarráðs hvort botninum væri náð á
hlutabréfamarkaðnum. Svarið var nei, enn gætu lækkanir á
erlendum og innlendum mörkuðum átt eftir að líta dagsins
ljós. Það hefur komið á daginn. Síðustu tvær vikur aprílmán-
aðar varð töluverð hækkun á flestum erlendum mörkuðum
og er það vonandi merki þess að botninum séð náð þar. Enn
má búast við töluverðum sveiflum en markaðurinn ætti að
stefna uppávið. Mun meiri óvissa ríkir um íslenskan hluta-
bréfamarkað, þar kemur tvennt til; langtímaáhrif sjómanna-
verkfallsins og mikið gengissig íslensku krónunnar undan-
farna mánuði.
Margir fjárfestar sem fylgjast náið með markaðinum
spyrja sig hvort ekki séu komin góð kauptækifæri víða.
Óvissuþættirnir eru samt fleiri en á sama tíma fyrir ári, en þá
var hlutabréfaverð um 35% hærra en núna. Margir mundu því
telja að nú hljóti að vera komin góð kauptækifæri úr því mark-
aðurinn mat þessi fyrirtæki svona fyrir ári. Hlutabréfakaup
núna henta vel fyrir þá sem eru að festa fé sitt í nokkurn tíma.
Skammtímaijárfestar ættu að fara sér hægt.
En hvaða bréf á að velja, þau sem hafa lækkað mest, eru
ódýrust í innkaupum miðað við síðasta ár, eða þau sem hafa
haldið sínu verðgildi nokkuð stöðugu. Eru einhver fyrirtæki
sem hagnast á gengissiginu? Til lengri tíma litið eru mörg
fyrirtæki á VÞI sem hagnast á gengissiginu, svo fremi að það
komi ekki allt fram í hækkandi kostnaði. Það eru væntingar
um hækkandi gengi hlutabréfa en hvenær það gerist er úti-
lokað að spá um.
Þetta er eins og að spá um laxveiðigengdina í sumar. Það
vonast allir eftir góðu laxveiðisumri. Það sama má segja um
hlutabréfamarkaðinn, það vonast allir eftir að hann hressist.
Burtséð frá spánum er eitt nokkuð víst, það leynast nokkur
ágæt kauptækifæri á íslenska hlutabréfamarkaðnum. En það
hefur sennilega aldrei verið jafn erfitt að velja þau fyrirtæki
sem eiga inni fyrir hækkunum á sínu gengi.ffl
ísland gæti með skattalækkunum laðað til sín erlend fyrirtæki. Við erum ekki bundin af samningum við
Evrópusambandið í þessu efni og höfum því mun meira svigrúm en flestar aðrar þjóðir.
Síðustu tvær vikur aprílmánaðar varð töluverð hækkun á flestum erlendum mörkuðum og er það
vonandi merki þess að botninum séð náð þar. Enn má þó búast við töluverðum sveiflum, en
markaðurinn ætti að stefna upp á við úr þessu.
49