Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2001, Page 49

Frjáls verslun - 01.04.2001, Page 49
Það vonast allir eftirgóðu laxveiðisumri. Sama má segja um hlutabréfamarkaðinn, það vonast allir eftW að botninum sé náð og að hann hressist úrþessu. FV-myndir: Geir Olafsson aðstæðna hér. Hér þyrftu margir aðilar að taka höndum sam- an og kynna Island sem áhugaverðan kost fyrir alþjóðleg fyrirtæki. Utflutningsráð ætti að taka forystu í þessu máli, það er ekki stór munur á því að selja íslenska vöru eða selja rómaða íslenska þjónustu. Skattalækkun á fyrirtæki á örugglega eftir að skila sér til baka, ekki bara til góða fyrir ríkisssjóð heldur til hagsbóta fyrir ijölmarga aðra aðila. GÚð kaup í hlutabréfum? í byrjun mars var um það rætt á morgunverðafundi Verslunarráðs hvort botninum væri náð á hlutabréfamarkaðnum. Svarið var nei, enn gætu lækkanir á erlendum og innlendum mörkuðum átt eftir að líta dagsins ljós. Það hefur komið á daginn. Síðustu tvær vikur aprílmán- aðar varð töluverð hækkun á flestum erlendum mörkuðum og er það vonandi merki þess að botninum séð náð þar. Enn má búast við töluverðum sveiflum en markaðurinn ætti að stefna uppávið. Mun meiri óvissa ríkir um íslenskan hluta- bréfamarkað, þar kemur tvennt til; langtímaáhrif sjómanna- verkfallsins og mikið gengissig íslensku krónunnar undan- farna mánuði. Margir fjárfestar sem fylgjast náið með markaðinum spyrja sig hvort ekki séu komin góð kauptækifæri víða. Óvissuþættirnir eru samt fleiri en á sama tíma fyrir ári, en þá var hlutabréfaverð um 35% hærra en núna. Margir mundu því telja að nú hljóti að vera komin góð kauptækifæri úr því mark- aðurinn mat þessi fyrirtæki svona fyrir ári. Hlutabréfakaup núna henta vel fyrir þá sem eru að festa fé sitt í nokkurn tíma. Skammtímaijárfestar ættu að fara sér hægt. En hvaða bréf á að velja, þau sem hafa lækkað mest, eru ódýrust í innkaupum miðað við síðasta ár, eða þau sem hafa haldið sínu verðgildi nokkuð stöðugu. Eru einhver fyrirtæki sem hagnast á gengissiginu? Til lengri tíma litið eru mörg fyrirtæki á VÞI sem hagnast á gengissiginu, svo fremi að það komi ekki allt fram í hækkandi kostnaði. Það eru væntingar um hækkandi gengi hlutabréfa en hvenær það gerist er úti- lokað að spá um. Þetta er eins og að spá um laxveiðigengdina í sumar. Það vonast allir eftir góðu laxveiðisumri. Það sama má segja um hlutabréfamarkaðinn, það vonast allir eftir að hann hressist. Burtséð frá spánum er eitt nokkuð víst, það leynast nokkur ágæt kauptækifæri á íslenska hlutabréfamarkaðnum. En það hefur sennilega aldrei verið jafn erfitt að velja þau fyrirtæki sem eiga inni fyrir hækkunum á sínu gengi.ffl ísland gæti með skattalækkunum laðað til sín erlend fyrirtæki. Við erum ekki bundin af samningum við Evrópusambandið í þessu efni og höfum því mun meira svigrúm en flestar aðrar þjóðir. Síðustu tvær vikur aprílmánaðar varð töluverð hækkun á flestum erlendum mörkuðum og er það vonandi merki þess að botninum séð náð þar. Enn má þó búast við töluverðum sveiflum, en markaðurinn ætti að stefna upp á við úr þessu. 49

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.