Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 59
Umhverfi verslunarinnar hentar fótunum vel, þau eru óhefbbundin að sjá en passa ótrúlega vel saman og endast mun lengur en „venjuleg"fijt.
FV-myndir: Geir Olafsson
ær Valgerður Torfadóttir og Björg
Ingadóttir hafa unnið saman um
nokkurra ára skeið, eða allt frá ár-
inu 1993 að uppbyggingu fyrirtækisins
Spaks manns spjarir. Nafnið er komið úr
gamalli þulu og hefur þótt skemmtilegt,
þó svo oft á tiðum væri vísað í „búðina
með skrítna nafnið", eins og Valgerður
orðar það. Verslunin flutti nýlega úr Þing-
holtsstræti og er nú nánast á horninu á
Bankastræti og Ingólfsstræti.
Valgerður er textílhönnuður að mennt en Björg fatahönn-
uður og nýtist þekking þeirra beggja vel í vali á efnum og
sniðum. Sniðin eru unnin af kostgæfni og eru ætluð konum
af ýmsum stærðum, en fatnaðurinn er unninn í stærðum x-
small - x-large.
Hannað í kjallaranum „Fötin hjá okkur ganga vel saman,
hvort sem þau eru gömul eða ný,“ segir Björg. „Það má segja
að þau endist full vel - sem kemur auðvitað niður á sölunni að
einhverju leyti, en yfirleitt er mjög auðvelt að setja saman flík-
ur frá okkur og nota jafnvel 5 ára gamla spaksmannsspjör
með nýrri.“ í versluninni vinna 3 konur ásamt þeim Valgerði
og Björgu og í kjallaranum er hönnunarverkstæði. Þar eru
prufuflíkur gerðar, séð hvað passar saman
og sniðin unnin.
„Við vorum með marga litla verktaka í
að sauma fyrir okkur," segir Valgerður,
„en það gekk ekki upp. A Islandi eru eng-
ar stórar saumastofur og það gengur ekki
að fá t.d. buxurnar úr drögtunum fýrst og
jakkana sex vikum seinna. Því var það að
við fórum til Tékklands þar sem við
komumst í samband við verksmiðjur sem
framleiða fyrir okkur. Hér heima sjáum
við svo um smábreytingar og annað sem þarf. Hver lína er
búin til í heild. Þær ákveða hvað þær vilja leggja áherslu á,
hvernig næsta tímabil á að verða og hefja vinnu út frá því.
Teikna, búa til snið, sauma og prófa. Þegar þær eru sáttar við
árangurinn eru flíkurnar saumaðar í „rétt“ efni og send út til
Tékklands ásamt teikningum sniðum og uppskriftum. „Þær
koma til baka og þá er eitthvað vitlaust," segir Björg, „alltaf
eitthvað sem ekki gengur upp eða eitthvað sem betur má
fara.“ Þegar sniðin hafa verið fullreynd og efnin komin í hús
gera þær sniðin í öllum stærðum og senda út þar sem fötin
eru framleidd.
„Við höfum farið þá leiðina að kaupa efnin í gegnum Vogue
sem hefur áratugareynslu í efnainnkaupum, þau sjá síðan um
I hráu umhverfi verslunar-
innar við Bankastræti njóta
fiótin frá Spaks manns spjör-
um sín vel. Litirnir eiga
saman, sniðin ganga upp.
Eftír Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafsson
skrítna nafnið
59