Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 44

Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 44
Fjöldi fjárfesta og bankamanna mœttu á fundinn á Hótel Borg. Feðginin Jóhannes Jónsson í Bónus og dóttir hans, Kristín, framkvæmdastjóri Gaums, fjár- festingarfélags Bónus-Jjölskyldunnar, á morgunverðarfundinum á Hótel Borg. Jóhannes hefur dregið sig úr daglegu amstri og stjórnar Baugi núna meira úr fjarlœgð, sem einn helsti eig- andi fyrirtœkisins - og maðurinn sem tendraði eldana fyrir þrettán árum og hóf œvintýrið ásamt fjölskyldu sinni í lítilli skonsu við Skútuvoginn. Verður Baugur skráður erlendis? í ljósi breyttra aðstæðna hjá Baugi íhuga forráðamenn félagsins nú að skrá félagið á erlend- um hlutabréfamörkuðum og stendur valið á milli New York, London og Stokkhólms. Fróðlegt verður að sjá hvernig það tekst til. Jón Ásgeir og félagar meta stöðuna þannig að íslenski hlutabréfamarkaðurinn sé of lítill til frambúðar og sömuleiðis útheimti það skráningu erlendis þegar stærsti hluti hagnaðar- ins verður til þar. Hvaða þekkingu færa þeir inn í Arcadia? Auðvitað er áhættan veruleg í útrás Baugs, eins og í öllum svona viðskiptum. Vogun vinnur - vogun tapar. Stóra spurn- ingin, sem flestir í viðskiptalífinu spyrja sig, er hvaða þekkingu og reynslu lykil- stjórnendur og eigendur Baugs hafi fram að færa inn í Arcadia Group og Bonus Stores Incorp. í Bandaríkjunum. Hvað hafa þeir Baugsmenn að gefa inn í þessar samsteypur sem ijárfestar erlendis virð- ast ekki hafa búið yfir? Það er, og verður alltaf, erfitt að stýra stórum fyrirtækjum erlendis frá íslandi. Vissulega má ekki horfa fram hjá því að veruleg reynsla og viðskiptatengsl á alþjóðlegum vettvangi eru nú fyrir hendi innan Baugs - bæði í rekstri verslana og í fjárfestingum. Sömu- leiðis eru ekki nema tólf ár síðan þeir feðgar, Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir, stofnuðu Bónus í lítilli skonsu við Skútuvoginn. Sú skonsa er núna orðin alþjóðafyrirtækið Baugur. Þeir feðgar hafa því reynslu í kaupmennsku og hernaðaráætlunum, reynslu af því að færa út kvíarnar. Sjálfur lítur Jón Ásgeir á fjárfestingar Baugs í Arcadia Group og Bonus Stores Inc. sem langtímafjár- festingar sem eiga - einar og sér - að standa undir sér og skila Baugi arði. Hann segir að Baugur hafi lagt fram tillögur að nánara samstarfi við stjórnendur Arcadia og sem stærsti hlut- hafi í Arcadia skapist tækifæri að enn nánara samstarfi í upp- byggingu á vörumerkjum Arcadia erlendis. BAUGSVELDIÐ ÞENST ÚT Þeir voru mættir frá Arcadia Group á fundinn. Frá vinstri: Charles Wilson, Nigel Hall fjármálastjóri og Stuart Rose forstjóri. Markaðsverðmæti Arcadia hefur hækkað Ýmislegt bendir til að Baugur hafi þegar hagnast á kaupunum í Arcadia. Hlutur Baugs í Arcadia, 20,1%, sem keyptur var fyrir um 10,3 milljarða króna, (en meðalkaupverð bréfanna var 1,65 pund á hlut), er núna að markaðsverðmæti um 14 milljarðar miðað við gengi bréfa Arcadia Group á London Stock Exchange. Gengi bréfa félagsins hækkaði um 40% í kjölfar birtingar milliuppgjörs hinn 5. apríl sl. Verð bréfa á hlutabréfamörkuðum er hins vegar hverfult eins og Ijárfestar um allan heim hafa komist að undan- farið ár. En þessi byijun lofar hins vegar góðu. Morgunfundurinn á Hótel Borg Fimmtudaginn 17. maí sl. var haldinn athyglisverður morgunfundur Kaupþings og Baugs með íslenskum ijárfestum á Hótel Borg þar sem m.a. Stuart Rose, forstjóri Arcadia Group, mætti til leiks til að útskýra stöðu og áætlanir Arcadia Group. Hann telur fyrirtækið eiga „mikið inni“ og hægt verði að hagræða í rekstri sem og grynnka á skuldum á næstu misserum. Eigið fé fyrirtækisins er um 54 milljarðar íslenskra króna og gert er ráð fyrir að hagnaður þess verði um 6 milljarðar króna fyrir skatta á yfir- standandi rekstrarári sem lýkur 30. ágúst nk. Arcadia Group er næststærsti seljandi tískufatnaðar í Bretlandi og er með versl- anir víðar í Evrópu. Félagið rekur 1.800 verslanir og 600 svo- kallaðar „store in store“ verslanir og eru TopShop, Burton, Evans, Miss Selfridge og Dorothy Perkins á meðal þekktustu vörumerkja félagsins. Keppinautar Bill’s Dollar Store vestanhafs Á fyrrnefndum morgunverðarfundi á Hótel Borg kom fram hjá Jóni Ásgeiri að 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.