Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 45

Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 45
Stuart Rose, forstjóri Arcadia Group, á morgunverdarfundinum á Hótel Borg á dögunum. Hann segir fyrirtækib eiga „mikið inni“ og hægt verði að hagræða í rekstri sem og grynnka á skuldum þess á næstu misserum. Eigið fé fyrirtækisins er um 54 milljarðar tslenskra króna og gert er ráð fyrir að hagnaður þess verði um 6 milljarðar króna fyrir skatta á yfirstandandi rekstrarári sem lýkur 30. ágúst nk. þótt lágvöruverðskeðjurnar Bonus Doll- ar Store og Bill's Dollar Store í Banda- ríkjunum verði sameinaðar í eitt félag, Bonus Stores Inc., sem Baugur á meiri- hluta í og er núna dótturfélag þess, verði þær reknar áfram undir sömu nöfnum. Bill's Dollar Store rekur 410 verslanir vestanhafs. Þar er mikið verk óunnið við að koma þeirri skútu á gott skrið. Fyrir- tækið fór í greiðslustöðvun í janúar sl. eftir að hafa farið í mikla uppbyggingu án þess að hafa tryggt sér ijármagn til þess. Baugsmenn hafa núna endurijár- magnað keðjuna og eru vongóðir um að hún skili hagnaði þegar á þessu ári og sömuleiðis á því næsta. Helstu keppi- nautar Bill's Dollar Store í Bandaríkjun- um eru Dollar General, með yfir 5 þús- und verslanir, Family Dollar, með tæp- lega 4 þúsund verslanir, Dollar Tree, með um 1.700 verslanir, Variety Wholes- alers, með um 500 verslanir og 99 Cents Only Stores, með yfir 100 verslanir. Bill's Dollar Stores eru í Suðurríkjum Bandaríkjanna og verður Jim Schafer, forstjóri Bonus Dollar Store, forstjóri hins sameinaða fyrirtæk- is, Bonus Stores Inc. Aukinn hagnaður Baugs Þótt Baugur eigi 20,1% í Arcadia Group og sé stærsti einstaki hluthafinn af 25 þúsund hluthöf- um í fyrirtækinu verður hluturinn í Arcadia inni í samstæðu- reikningi Baugs. Aætlaður efnahagsreikningur Baugs í lok þessa árs verður um 35 milljarðar króna, þar af eigið fé í kring- um 15 milljarðar. Á áðurnefndum morgunverðarfundi á Hótel Borg með íslenskum ijárfestum og Stuart Rose, forstjóra Arcadia, upplýsti Jón Ásgeir að áætlaður hagnaður Baugs á hlut eftir skatta myndi aukast úr 48 aurum árið 2000 í um 70 aura á þessu ári, eða um 45%. Það er myndarleg aukning og verður að teljast vel að verki staðið náist sá árangur. Baugsbréf hafa ekki hækkað við útrásina Það vekur nokkra athygli að þrátt fyrir að velta Baugs muni nær ijórfaldast á þessu ári með kaupunum í Arcadia Group og meirihlutanum í Bonus Stores Inc. í Bandaríkjunum og spáð sé auknum hagn- aði hefur það ekki skilað sér í hækkandi gengi Baugsbréfa á Verðbréfaþingi íslands. Undanfarna mánuði hefur gengið sveiflast á milli 11,50 og 12,50. Þegar þetta er skrifað, 22. maí, er gengi bréfa í Baugi 12,30. Þetta sýnir að íslenskir ijárfestar hafa einhverra hluta vegna ekki tekið við sér gagnvart bréfum í Baugi þrátt iýrir útrás fýrirtækisins. Einhveijir kynnu að út- skýra það þannig að þeir hefðu takmarkaða trú á útrásinni - eða þá að hlutabréfamarkaðurinn hér heima sé enn daufari og daprari en haldið hefur verið fram til þessa. Frá því aðalfundur Baugs var haldinn hefur félagið aukið hlutafé sitt um 463 milljónir að nafnverði til að standa straum af kaupunum á hlutnum í Arcadia. Hin nýju útgefnu bréf í Baugi skiptast á eftirfarandi: Kaupþing um 192 milljónir, Gaum um 148 miljónir, Íslandsbanka-FBA um 82 milljónir og Gildingu um 41 milljón. I raun gerðist þetta þannig að þessir aðilar áttu 87% í A. Holding SA og Baugur 13%. Það var A. Holding sem stóð að kaupunum á 20,1% hlutnum í Arcadia Group, samtals 37.980.450 hlutum í iýrirtækinu. Og fyrir þessi 87% greiddi Baugur með hlutabréfum í Baugi að nafnverði 463 milljónir. Lítil shonsa verður að alþjóðaævintýri Það eru breyttir tímar. Ævintýrið, sem hófst í lítilli skonsu við Skútuvoginn fyrir tólf árum, hefur undið hressilega upp á sig undir forystu Baugs- sveitarinnar. Áhættan með útrásinni er mikil - en þannig verður það vist alltaf í viðskiptum og þannig byrja oft ný ævintýri. ffl #>Ecrix -VXA- • PANDA vírusvarnar- forrit - Öflug leiö til þess að halda tölvunni lausri viö vírusa. AFRITUNAR- ^EcrÍX STÖÐVAR -VXA- Stærðspólu: 66 GB þjöppuð / 32 GB óþjöppuð. Afköst: 6 MB/sek. „Interface": SCSI UltraWide2 LVD 68 pinna. Gagna þjöppun: ALDC vélbúnaður. Villuleið- rétting: 4-layer Reed Solomon ECC. Líftími les/skrif haus: 30.000 klst. Samhæfni: Windows, Linux, Novell, Unix, MacOS (listinn er ekki tæmandi). HTT Heildarlausnir i tölvu- & tæknibúnaði HT&T ehf. Sætún 8, 125 Reykjavík Sími 569 1400, Fax 569 1554, www.htt.is 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.