Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 57
20 vinsælustu tyrirtækin
Almennir starfsmenn eru
mjög stoltir og metnaðarfullir
í vinnunni, þar er þó munur
milli kynja því að karlar eru
stoltari en konur en konurnar
sýna hins vegar meiri metnað.
Starfsmennirnir telja sig al-
mennt ekki vera nægilega vel
upplýsta um starfsemi og
ákvarðanatöku innan síns fýrir-
tækis en telja sig njóta virðingar
og að nægilegt tillit sé tekið til
þarfa og einkalífs starfsmanna á
vinnustað. „Svo virðist sem mik-
il virðing sé borin fýrir einkalífi
kvenna og karla þannig að ís-
lenskt atvinnulíf tekur meira tillit
til veikinda barna og annarra
brýnna heimilisaðstæðna en oft
er talið. Atvinnurekendur eru
greinilega mjög umburðarlyndir
og kannski er það vegna þess að
ijölskylduböndin eru svo sterk á
Islandi."
Ánægja með sveigjanleika Almennir starfs-
menn njóta sveigjanleika í starfi og vinnutíma og
eru mjög ánægðir með það. Almennir starfs-
menn eru ánægðari, opnari og bjartsýnni, hlý-
legri og liprari í framkomu en hæst settu stjórn-
endurnir. Almennir starfsmenn eru ekki ánægð-
ir með launakjör sín og reyndar mun óánægðari
en stjórnendur, margir þeirra telja að þau séu
ákveðin af ósanngirni. „Þeir sem eru á betri kjör-
um eru væntanlega ánægðari með kjör sín en
hinir. Stjórnendurnir standa einnig nær þeim
sem ákveða launin eða ákveða þau sjálfir að ein-
hverju leyti. Almennir starfsmenn telja sig al-
Sóknarfæri
Könnunin sýnir aðeins blæbrigðamun
milli viðhorfa stjórnenda og almennra
starfsmanna og þar sem munurinn er
mestur felst sóknarfæri fyrir stjórnend-
ur, að mati Gunnars Páls Pálssonar,
hagfræðings hjá VR. „Þeir geta náð
betri árangri hver í sínu fyrirtæki með
því að bæta úr þeim veikleika sem
könnunin sýnir, t.d. hvað varðar
starfsanda á vinnustað. Með því að afla
sér betri og hlutlausari upplýsinga um
það sem er að gerast á vinnustaðnum
má vinna betur að því að bæta
starfsanda."
Tandur hf.
Reykjagarður hf.
Daníel Ólafsson ehí.
Dressmann á íslandi ehf.
Halldór Jónsson ehf.
Net-Albúm.net hf.
Teymi hf.
EJS hf.
Veiðartærasalan Dímon ehf.
Árdegi ehf.
Eir, hiúkrunarheimili
PricewaterhouseCoopers ehf.
Ásbjörn Ólafsson ehf.
Netverk ehf.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Nlarel hf.
Sameinaða líttryggingarfélag hf.
Glóbus hf.
IMG þekkingarsköpun hf.
Hvíta húsið ehf.
STJÓRNUN VINSÆLDAKðNNUN VR
mennt vera á lægri launum en sambærilegir hópar
án þess að hafa neitt annað íýrir sér í því en tilfinn-
inguna. Ef til vill eru það mistök í stjórnun að hafa
ekki launamyndunarkerfið opið þannig að saman-
burður verði auðveldur og starfsmenn geti séð
hvort þeir eru á svipuðum kjörum og aðrir í sam-
bærilegum störfum eða ekki,“ segir Gunnar Páll.
Hann leggur til að launaleyndin verði afnumin
og vitnar í grein sem hann las fyrir nokkrum
árum þar sem fjallað var um það að í Bandaríkj-
unum væri launaleyndin farin að snúast upp í
andhverfu sína gagnvart vinnuveitendum. Þar
væri hún hliðhollari launþegum en atvinnurek-
endum.
Könnunin sýnir að almenn ánægja ríkir með
vinnnuskilyrði á vinnustað, t.d. hvað varðar hús-
næði, öryggismál, aðbúnað og matar- og kaffi-
hlé. Bæði stjórnendur og almennir starfsmenn
telja sig jafnlynda og yfirvegaða á vinnustað en
almennir starfsmenn telja sig liprari en stjórn-
endur.tíl
Öryggisskáparnir frá Rosengrens
eru traust geymsla fýrir peninga,
skjöl, tölvugögn og önnur verð-
mæti. Skáparnir sem eru í hæsta
gæðaflokki fást í ýmsum stærðum
og gerðum. Kynnið ykkur úrvalið.
Bedco & Mathiesen ehf
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími 565 1000
57