Frjáls verslun - 01.04.2001, Síða 66
Ef við horfum öld aftur í tímann þá hefur meðalraunávöxtun í
Bandaríkjunum verið 8%, þóttsum árin hafi ávöxtun verið 30% íþlús
og önnur ár hafi hún verið neikvœð um 30%. „Það er eðlilegur fylgi-
fiskur verðbréfaviðskipta að taþa oft miklum þeningum. “
Reglum af þessu tagi er aðeins breytt mjög sjaldan, það tekur
langan tíma að koma þeim á og því mikilsvert að vel takist til.
Jón hefur verið mjög gagnrýninn á hugmyndir bankans, sem
hann álítur að muni ýta undir fremur en draga úr óstöðugleika.
Skoðun hans má meðal annars sjá í grein á www.riskre-
search.org, heimasíðu hans.
„Nýju tillögurnar miðast að því að allt eigið fé ijármálastofn-
ana verði ákvarðað með áhættulíkönum, þar sem til viðbótar
við hefðbundna áhættuþætti, skuldir og markaðsáhættu, er
einnig tekið tillit til framkvæmda- og lausafjáráhættu. Því mið-
ur virðast nýju reglugerðartillögurnar ekki vera neitt miklu
betri en núverandi kerfi og að mörgu leyti verri,“ segir Jón.
Gagnrýni Jóns hefur einkum beinst að tveimur atriðum í
reglugerðartillögunum. „Bæði eru áhættulíkön mun verri en
BIS vill viðurkenna, og þeir virðast algjörlega hafa horft fram
hjá aukaáhrifum reglnanna, bæði á einstaka banka sem og hag-
kerfið í heild sinni. Við erum nokkrir kollegar hér við LSE, sem
erum að rannsaka hugsanlegar afleiðingar nýju reglugerðar-
innar og eigum gott samstarf við Bank of England, breska ijár-
málaeftírlitið, BIS og aðra sem vinna að þessum málum. Við
höfum smíðað haglíkan þar sem sést svart á hvítu hvernig BIS
reglurnar skaða hagkerfið. Vandamálið við gerð reglnanna er
ekki það að BIS og skyldar stofnanir vití ekki hvað þau eru að
gera, heldur að reglurnar eru samdar á pólitíska sviðinu en
ekki því fræðilega."
úr öskunni í eldinn Áhrif reglugerða á hegðun er miðlægt
rannsóknarsvið í hagfræði. Jón bendir á að sú einfalda staðreynd
að þungbúinn himinn hvetji fólk til að fara út með regnhlíf eigi
líka við í hagfræði. „Ef þú trúir á kreppu þá reynirðu að stemma
stigu við áhættunni, selja áhættusamar eignir eða kaupa trygg-
ingar (e. hedges). Munurinn er sá að sú staðreynd að ég fari út
með regnhlif hefur engin áhrif á líkurnar á rigningu, en ef ég
FJÁRMÁL JÓN DANÍELSSON í LONDON
kaupi íjármálatryggingu (hedge) hef ég bein áhrif á áhættueig-
inleika markaðarins."
En hver eru þá áhrif reglugerða á áhættu? „I reglulausu um-
hverfi sækja sumir í áhættusamar aðgerðir, aðrir ekki, en með
reglugerðum er haldið aftur af þeim áhættusæknu. Ef það er
kreppa og áhættureglugerðir við lýði þá er haldið aftur af mönn-
um við kaup á áhættueignum. Það eru einmitt þeir áhættu-
sæknu sem draga úr áhrifum verðbréfahruns, en ef reglur halda
aftur af þeim verður hrunið einfaldlega dýpra og meira langvar-
andi. Þess vegna eru BIS reglurnar byggðar á röngum grunni
og vanskilningi á hagkerfinu. Þeir sem semja reglurnar eru ekki
tilbúnir tíl að skilja að hagkerfið er samsafn einstaklinga og regl-
urnar kalla fram samskonar viðbrögð hjá þeim öllum.“ ;
En er þá best að hafa engar reglur? Hér svarar fræðimaður-
inn því til að það sé pólitísk ákvörðun og þá spurningu vilji
hann ekki ræða. „Málið er ekki hvort það eigi að vera reglur
eða ekki, heldur hvernig kerfið eigi að vera svo það virki sem
best. Reglukerfið þarf að taka tillit til áhrifanna sem það hefur.
Núverandi kerfi magnar hagsveiflur og nýja kerfið mun gera
það enn frekar, en það getur ekki verið tilgangurinn. Við viljum
að viðkomandi yfirvöld taki sér lengri tíma til að íhuga nýju
reglurnar. Þeir sem ráða nýju reglunum eru seðlabankastjórar
stærstu hagkerfanna og stjórnendur stærstu bankanna svo
reglurnar eru sniðnar að hagsmunum þessara aðila. Þær henta
ekki hagsmunum meðalstórra banka og heldur ekki hagkerf-
inu í heild. Við erum að reyna að koma í veg fyrir að það verði
farið úr öskunni í eldinn.“
Kerfi sem matjnar kreppu Island er að sjálfsögðu ekki undan-
þegið alþjóðlegum reglum um eigið fé banka. Jón bendir á að
það verði erfitt fyrir Island, líkt og fleiri, að beita reglunum, því
lítið sé vitað um áhættuna og það kreljist mikilla upplýsinga um
eðli markaðarins. Til þess að meta aðstæður og framfylgja regl-
unum þurfi bankarnir sérhæft og dýrt starfsfólk. Vandinn fyrir
hið opinbera sé hinn sami: Það þurfi dýrt starfsfólk.
„Nýja kerfið hentar allra stærstu bönkunum og jafnvel fyrir
meðalstórt Evrópuríki er erfitt að framfylgja nýju reglunum,
hvað þá minni ríki. Það eru aðallega Bandaríkin, Bretland og
Japan, sem hafa áhrif á reglurnar, sem önnur iðnriki þurfa síð-
an að framfylgja,“ segir Jón. í stórum dráttum beinist áhugi
Jóns að því hvað gerist í kreppu, ekki ffá degi til dags, heldur að 1
fjármálahreyfingum við aðstæður eins og í skandinavísku
kreppunni í kringum 1990, Asíukreppunni og hliðstæðum at-
burðum. Athyglin beinist þar að samspili reglugerða og sam-
dráttar, hvort reglugerðir magni eða dragi úr samdrætti. Alykt-
un hans er að fleiri reglur nú en áður, og sérstaklega aukin
notkun áhættulíkana, magni samdrátt og nýja kerfið um eigið fé
banka muni gera horfurnar enn verri.
En hvaða augum lítur kreppusérfræðingurinn aðstæður nú
þegar svo margir tala um samdrátt og komandi kreppu? „Ef við
lítum átján mánuði aftur í tímann þá má sjá að það var mikill
hagnaður og hagsagan kennir okkur að þegar hagnaður er
mikill þá er áhættan líka mikil. Ef við horfum öld aftur í tímann
Kerfi sem magnar kreppu
Jón hefur verið mjög gagnrýninn á hugmyndir Bank of International Settlements, BIS, um nýjar reglur
um eigið fé banka. Þeim er ætlað að hindra að bankakerfið hrynji þegar áföll ganga yfir. Jón álítur að
nýju reglurnar muni ýta undir fremur en draga úr óstöðugleika.
66