Frjáls verslun - 01.04.2001, Page 71
FEIMNISIVIÁL VIÐ RÁÐNINGflR
ekki bara út af barneignum. Tímarnir eru breytt-
ir. Barneignir eru oft skipulagðar hjá fólki í
ábyrgðarstöðum og því hef ég orðið vör við að
konur ráða sig síður í störf þar sem kæmi sér illa
ef viðkomandi myndi hverfa á brott um lengri
tíma, ef slík mál eru á dagskrá. Reyndar hefur það
aukist á síðari árum að konur um fertugt eignist
börn engu síður en þær yngri.“
Fer eftir aðstæðum Starfsmenn stéttarfélaganna
verða hins vegar í vaxandi mæli varir við að kon-
ur séu spurðar um fyrirhugaðar barneignir og tel-
ur Elías Magnússon, starfsmannastjóri hjá VR, að
það hafi færst í vöxt á undanförnum misserum að
þessi spurning sé lögð fyrir konur. Það merkir
hann af því að konur hafa í auknum mæli sam-
band við félagið vegna þess að þeim hafi þótt sér
misboðið með svo persónulegum spurningum
um einkahagi. Hann segir að konur velti fyrir sér
hvort þessar spurningar séu eðlilegar, hvort þeim
beri að svara og þá á hvaða lund sé réttast að gera
það. Elías kveðst ráðleggja konum að svara á
heiðarlegan og hreinskilinn hátt, sérstaklega ef
þær eru þungaðar, en auðvitað verði þær alltaf að
taka tillit til aðstæðna hveiju sinni.
Olafur Jón Ingóljsson, starjsmannastjóri hjá Sjóvá-Almennum. „I eina skiptið sem ég
hefrætt þessa hluti við kvenmann var þegar égfyrirhugaði að senda konu í þjálfun-
arbúðir til Ameríku vegna verkefnis sem átti að standa yfir í meira en eitt ár. Viðkom-
andi var á góðum aldri, barnlaus og í sambúð ogþvífannst mér eðlilegt að rœða þetta
oþinskátt við hana. “
- Þú mælir þá með því að kona segi það hreint út
ef hún ætlar að koma sér fvrst fyrir í vinnu og
eignast svo barn eftir td. tvö ár?
„Ég held að í því tilfelli skerði hugsanlega hrein-
skilið svar möguleika konunnar á að hreppa starf-
ið og það verður hún að meta líka. Ég er ekki
sannfærður um að konan eigi endilega að svara þannig því að
margt getur gerst á tveimur árum. Mér finnst í sjálfu sér í lagi
að spurningin komi fram en það er einstaklingsbundið hvort og
hvernig á að svara. Konur eru ekki skyldugar að svara spurn-
ingunni því að þetta er einkamál hverrar konu,“ svarar hann.
Þjálfunin borgar Sig ekki Menntun getur skipt talsverðu máli
hvað spurninguna um fyrirhugaðar barneignir varðar og er
hugsanlegt að spurningin sé oftar lögð fyrir lítið menntaðar
konur en menntakonur. Þær síðarnefndu hafa lagt í mikla ijár-
festingu með menntun sinni og hyggjast þvi oft halda sig á
vinnumarkaði eftir barneignir. I slíkum tilfellum hverfa konurn-
ar gjarnan á brott í skamman tima og segir Ólafur Jón að fyrir-
tækin séu tilbúin til að bíða í þann tíma, minni líkur séu á að fyr-
irtæki missi starfskrafta háskólagenginna kvenna og þvi sé
spurningin síður lögð fyrir þær. Meiri hætta sé hins vegar á því
að minna menntaðar konur hverfi alfarið úr fyrirtækinu eða af
vinnumarkaði og þvi séu þær kannski frekar spurðar að þessu.
í sumum tilfellum borgi sig ekki að þjálfa þær upp í starfið ef
þær hverfa fljótlega á braut og koma ekki aftur. Spurningin um
fyrirhugaðar barneignir er „tabú“, eins og áður hefur komið
fram, en starfsmannastjórarnir, sem Fijáls verslun ræddi við,
útiloka ekki að spurningin sé lögð fyrir vel menntaðar konur
sem sækjast eftir ábyrgðar- og stjórnunarstörfum.
Karlar verði líka spurðir!
Með nýjum lögum um fæðingarorlof karla má búast við að karlar verði í jafn miklum mæli spurðir um
fyrirhugaðar barneignir því að atvinnurekendur gera sér grein fyrir að karlar eiga rétt á sínu barns-
burðarleyfi eða þurfa að vera heima vegna barna í jafn miklum mæli og konur.
71