Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 76
leiða sæmilega umfangsmiklar auglýsingar í
sjónvarp, frá því að undirbúningur hefst, leit að
leikurum og þess háttar og þar til búið er er að
klippa auglýsinguna endanlega og hljóðsetja."
Filma eða myndband Helgi segir eitt öðruvísi
við sjónvarpsauglýsingar sem framleiddar eru
hér á landi en það er tímalengdin. „Við framleið-
um auglýsingar í þeirri tímalengd sem auglýsing-
in einfaldlega endar í en erlendis eru auglýsing-
arnar klipptar í 15, 30, 45 og 60 sek. tímalengd-
um. Þetta auðveldar skipulagningu birtingatím-
ans i sjónvarpi, gerð birtingaáætlana o.s.frv. Sem
betur fer eru fleiri og fleiri íslenskar auglýsingar
teknar á filmu en ekki video og hefur það aukið
gæði íslenskra sjónvarpsauglýsinga umtalsvert
þótt kostnaðurinn við filmuna sé mun meiri. Er-
lendis þekkist það ekki að auglýsingar séu tekn-
ar upp á video og heyrir slíkt til fornra búskapar-
hátta.“
Nýjar aðferðir „Til að ýta undir gerð sjónvarps-
auglýsinga höfum við með Fiskum, nýmiðlunar-
deildinni hjá okkur, framleitt einfaldar og ódýrar
sjónvarpsauglýsingar upp úr öðru auglýsinga-
efni, t.d. prentauglýsingum, þótt ekki hafi verð
gert ráð fyrir því í upphafi að fara í sjónvarp," seg-
ir Helgi. „Þannig höfum við styrkt herferðina,
jafnvel bætt við slíkum auglýsingum meðfram
öðrum sjónvarpsauglýsingum sem voru ffam-
leiddar með öllu tilheyrandi. Við höfum einnig
verið að flétta hér saman auglýsingum á Netinu
og í sjónvarpi og það er nýtt og mjög spennandi."
Tal í svarthvítu Tal fékk auglýsingastofuna Fít-
on og Saga Film til að gera fyrir sig sjónvarpsaug-
lýsingu haustið 2000 og hefur sú auglýsing vakið
nokkra athygli. Jafnvel verið haft á orði að senni-
lega væri þessi auglýsing sú dýrasta sem gerð
hefur verið á íslandi.
kostnað og höfðu ekki áhuga á frekari sigrum á þessum
vettvangi."
Margir hafa gagnrýnt að hlutur sjónvarps sé of lítill á ís-
lenskum auglýsingamarkaði og bent á stærð Morgunblaðs-
ins í því sambandi. Líta má á þessa gagnrýni sem áskorun til
íslenskra auglýsenda að gera fleiri sjónvarpsauglýsingar og
nýta sér mátt þeirra í auknum mæli.
„Framleiðslukostnaður á sjónvarpsauglýsingum er afar
misjafn, en til að gefa einhverja þumalfingursreglu þá er
meðalkostnaðurinn (fyrir utan hugmyndavinnu, handrit
o.þ.h.) á bilinu 2 - 3 milljónir kr. Að sjálfsögðu hafa verið
framleiddar áhugaverðar auglýsingar fyrir minni ijárhæð en
auðvitað fer þetta allt eftir umfangi, íjölda leikara og fjöl-
mörgum fleiri þáttum. Að jafnaði tekur 2 - 3 vikur að fram-
Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðssviðs Tals,
segir svo ekki vera. „Við vorum með áætlun upp á fimm millj-
ónir fyrir þessa auglýsingu og sú áætlun stóðst fyllilega,“ seg-
ir hún. „Auglýsingin er skemmtilega unnin og það var byggð
gríðarstór sviðsmynd fyrir hana, sú stærsta sem byggð hefur
verið að mér skilst. Það og ýmislegt fleira gerir það að verk-
um að myndin virðist dýrari en hún er. Myndin var öll tekin á
einum degi, á einum og sama staðnum og í einni samfellu en
engar klippingar áttu sér stað. Það sparaði bæði tíma og pen-
inga á móti öðrum kostnaði. Hvað varðar tónlistina þá getur
hún oft verið stór kostnaðarliður við gerð auglýsingar - al-
gengt er að erlend lög með vinsælum hljómsveitum séu not-
uð í auglýsingar sem þessar - tónlistin var unnin sérstaklega
fyrir þessa auglýsingu og það sparaði mikið. Lagið sem við
Að kaupa rétt á erlendu lagi getur kostað frá 200 til 600 þúsund krónum. Og þá er eftir að spila
lagið inn á band því upphaflegi flutningurinn fylgir ekki með í kaupunum.
76