Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 87

Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 87
Útskorin Ijóðágleri. Letrið verður nýtískulegra eftirþvísem ofardregurog endar í tölvuletri á 7. hæð. hlutverki að skilja á milli manna og skipta upp umhverfi. „Við hjá Prologus vorum búnir að velta þessu þó nokkuð fyrir okk- ur og þegar Eddu-verkefnið kom inn á borð hjá okkur var ákveðið að ráðast í þróun á hugmyndinni. Meginkrafan var að finna lausn sem gæti myndað lokað rými en þó opið og þvi var ákveðið að vinna með gler. Við fengum m.a. verkfræðinga í lið með okkur til að reikna út æskilega stærð og gerð glerveggs. Þetta tókst og útkoman var skilveggur sem ein manneskja get- ur fært til, er hæfilega stór eining og alveg fristandandi án fest- inga við gólf eða veggi og án þess að taka mikið gólfpláss með fótum.“ Fundarherbergin eru einnig úr gleri og eru i miðju rý- manna og taka þannig ekki pláss frá skrifstofum. Inni í hverju þeirra eru borð og stólar og glerveggir og glerhurð sem mynda ferning á gólfinu. Þessi lausn er mjög skemmtileg og frumleg og eins skrifborðin sem Guðmundur hannaði. Borðin eru bogadregin og mjókka til endanna svo starfsmaðurinn stýrir samskiptunum við hvort heldur sem er viðskiptavin eða samstarfsmann sem er mjög mikilvægt, ekki síst í opnu rými þar sem leitast er við að skapa eins mikið „prívat“ og kostur er á í hveijum bás. Útskorin Ijóð Til að skapa heildarmynd fyrir allt fyrirtækið var farin frumleg leið. Ljóðatextar eru skornir úr plasti og límd- ir á glerveggina á öllum hæðum. Mismunandi leturgerðir eru notaðar, byijað á skrifstöfum og gömlu letri á 3. hæð en eftir því sem ofar dregur verður letrið nýtískulegra og endar í einskonar tölvuletri á 7. hæð. „Þannig verður hugmyndin sú að lesa sig í gegnum söguna alla leið upp á topp,“ segir Guðmund- ur. „Ljóðin eru eftir 15 íslenska höfunda og þessi leið var farin meðal annars vegna þess að hér er verið að vinna með texta á öllum vígstöðvum og til að hleypa smá lífi í umgjörðina var ákveðið að gera textana ögn óaðgengilega með því að skera úr þeim í stað þess að líma þá beint og leyfa forminu á letrinu að njóta sín. Þannig verður þessi tenging um leið ákveðin þraut, og vonandi skemmtun, sem er auðvitað hluti af því að skapa áhugavert, lifandi umhverfi." 33 Klettagörðum 12 • 104 Reykjavík • sími 575 0000 • fax 575 0010 • www.sindri.is MIRAWALL ♦ 10 ára verksmiðjuábyrgð ♦ yfir80litir ♦ 50 my dufthúð tryggir endingu ♦ frábær gæði á hagstæðu verði Sigtún 42, Reykjavík - Arkit: Arkitektar sf., Verkt: Ármannsfell. Markland 12-16, Reykjavik - Arkit: Arkform, Verkt: Hreinn Halldórsson. Dalbraut 16 - Arkit: Guðfinna Thordarson & Gíslína Guðmundsd, Verkt. Húsvirki Fellaskóli - Arkit: Arkitektastofan hf., Verkt: HS verktakar inttBHiai K.'mauu... jí™ ^ J ’fni "

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.