Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 89
Brœðurnir Gunnar Páll og Sumarliði Rúnarssynir, veitingamenn á Vínbarnum við Kirkjutorg.
McLaren Vale. Þetta vín mun án efa ná miklum vinsældum.
Annað mjög athyglisvert vín frá Rosemount nefnist Mountain
Blue en þetta vín er pressað úr Shiraz og Cabernet Sauvignon
þrúgunum. Þegar þessar línur eru settar á blað var hvorugt
þessara vína fáanleg í verslunum ÁTVR. Gunnar Páll heldur
áfram: „Þetta eru dæmi um vin sem eru afar vinsæl um þessar
mundir. Stór hluti gesta okkar eru fastagestir. Við starfrækjum
einnig hérna vínklúbb sem hittist einu sinni í mánuði." Vínbar-
inn er því kærkominn staður fyrir unnendur góðra vína.
Vorvíll 5. maí var frétt í Morgunblaðinu þess efnis að fólk sem
drekkur vín í hófi er 47% ólíklegra til að fá hjartabilun en þeir
sem ekki drekka. Hér er vitnað til rannsókna sem sagt er frá í
hinu virta læknablaði Journal of The American Medical Associ-
ation. I greininni kemur fram að vínið getur aukið magn svo-
nefnds góðs kólesteróls HDL í blóðinu og að vín geti haldið
blóðinu þunnu og dregið þannig úr hættunni á myndun blóð-
tappa sem geta leitt til hjartaáfalls. Þess vegna er það góð hug-
mynd að fá sér glas af góðu víni eftir vinnu eða með matnum.
Afar þægilegt og ljúft vín er Beringer North Coast Zinfandel
1997 á krónur 1.540.- Þetta er skemmtilega eikað vín með beija-
bragði, bláberja- og jafiivel jarðarberjabragði. Sérstakt vín með
miklum karakter er Weinert Malbac 1995 á krónur 1.240.- Þetta
vín kemur frá Argentínu og er pressað úr Malbec þrúgunni en
hún dafnar einkar vel í Argentínu, þetta er frekað kryddað vín,
í því finnum við pipar, kanil og jafnvel negul en einnig ljúfan
ávaxta- og hunangskeim. Weinert Malbec er vín sem kemur
skemmtilega á óvart. Á sérlistanum rakst ég á frábært Mos-
elvín, Dr. Loosen Urziger Wurzgarten Riesling Spatlese á krón-
ur 1.900.- Þetta vín hefur allan sjarma Riesling vinannna frá
Mosel. Það er margbrotið með góðri sýru, flókið bragð af beij-
um, ávöxtum og kryddi en þó svo þægilegt. Þetta vín þarf helst
að kæla niður í 12-14° áður en það er drukkið. Manni liður vel
eftír 1-2 glös af þessu margbrotna víni.
0g fyrir sálina Vín er ekki bara gott fyrir hjartað heldur einnig
fyrir sálina, enda beint samband á milli hjarta og sálar, ekki má
gleyma ástinni og rómantíkinni. Nú er náttúran að vakna eftír
dvala vetrarins, það er vor í loftí. Það er hressandi að fara í
gönguferð, gjarnan meðfram ströndinni og ijörunni. Og ekki er
verra að fara með einhveijum sem manni þykir vænt um. Þeg-
ar heim er komið er svo frábært að fá sér glas af góðu víni,
mæla má með Kim Crawford Marlborough Sauvignon Blanc,
þetta er vín frá Nýja Sjálandi og kostar krónur 1.650.-, af þessu
ljúfa víni er milt ávaxta- og sítrónubragð, þetta er tært og frísk-
andi vín sem minnir á vorið. Þá má einnig mæla með góðu vini
frá Bourgogne og pressað úr Pinot Noir þrúgunni og nefnist
Laforet Bourgogne Pinot Noir 1998 á krónur 1.240.- Þetta er létt
vín og þægilegt, af því er jarðaberja- og kirsuberjabragð og vín-
ið er ilmríkt. Ekki sakar að haldast í hendur og hlusta á fallega
tónlist, td. Árstíðirnar eftír Vivaldi. SIi
Vín er ekki bara gott fyrir hjartaö heldur einnig fyrir sálina, enda beint sam-
band á milli hjarta og sálar, ekki má gleyma ástinni og rómantíkinni.
Sigmar B. Hauksson mælir með eftirfarandi vínum:
GSM 1998 kr. 2.200,-
Mountain Blue kr. 2.700,-
Beringer North Coast Zinfandel 1997 kr. 1.540 -
Weinert Malbec 1995 kr.1.370,-
Laforet Bourgogne Pinot Noir 1998 kr. 1.240 -
89