Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2002, Page 52

Frjáls verslun - 01.02.2002, Page 52
ORRAHRÍÐIN í KRINGUM LANDSSÍMflWN Hversu langan starfssamning á að gera? (5 ára samningur Þórarins) að var svo sem allt í lagi hjá Þórarni að fara fram á ráðningarsamning til fimm ára, eins og tíðkast hjá hinu opinbera, t.d. í bankakerfinu, þótt yfirlýst markmið stjórnvalda væri að selja Símann á miðjum ráðningartíma hans. Atti Þórarinn að fórna margra ára starfi framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambandsins og taka áhættuna á því að við sölu fyrirtækisins myndi nýr eigandi Símans ekki vilja hafa hann lengur í starfi og setja nýjan mann í forstjórastólinn? Það var hins vegar rangt af stjórnvöldum að fallast á svona samning við Þórarin þegar sala fýrirtækisins var innan seilingar og vitandi vits að slíkur samningur gæti bundið hendur þeirra. Það er örugglega rangt hjá stjórnvöldum að hafa æviráðn- ingar og fimm ára ráðningasamninga í gangi, hversu algengir sem slíkir samningar eru. í tilviki Þórarins var þetta skuld- binding upp á yfir 70 milljónir króna og virkaði þannig að mjög dýrt yrði „að hjóla í hann“ líkaði mönnum ekki við hann í starfi. Það reyndist líka raunin. Starfslokasamningurinn tryggði honum réttilega 37 milljónir króna. Að fallast á fimm ára samning var líka óskymsamlegt í ljósi þess að það var Þórarinn sem þrýsti á að fá vinnu sem forstjóri Símans en ekki öfugt. Það þarf ekki mörg orð um það að ef stjórn fyrirtækis leggur ofurkapp á að fá einhvern ákveðinn einstakling í starf forstjóra þá er sá hinn sami í mjög góðri samningsstöðu og getur farið fram á meira en gengur og gerist. Líklegast ætti uppsagnartími í samningum forstjóra á hinum almenna markaði ekki að vera meiri en sex mánuðir til eitt ár þannig að starfslokasamningurinn hljóði í mesta lagi upp á um 15 millj- ónir. Það er há tala og hljómar raunar eins og lottóvinningur í hugum flestra. Astæðan fyrir því að flestir forstjórar óska eftir ákvæðum um starfslok, eða löngum uppsagnarfresti, í samninga sína er sú að það reynist þrautinni þyngra fyrir brottrekna forstjóra að fá vinnu aftur sem forstjórar í stórfyrirtækjum. Ekki þarf annað en að skoða forstjórabreytingar í íslenskum fyrirtækjum síðustu fimm árin til að sjá að nánast enginn brottrekinn forstjóri stýrir stórfyrirtæki á Islandi. Forstjóramarkaðurinn er svo lítill hér- lendis að menn fá nánast bara „einn séns“, eitt tækifæri til að standa sig. Fæstir þeirra setjast því strax í annan forstjórastól og þurfa talsverðan tíma til að aðlagast breyttum aðstæðum. Þegar forstjórar eru ráðnir í vinnu er algengast að þeir krefjist launa upp á um eina milljón á mánuði. Auk þess kreijast þeir yfirleitt að fá lúxusjeppa til afnota frá fyrirtækinu (að and- virði um 4 til 5 milljónir króna), GSM-síma, dýra tölvu heim til sín, nettengingu, sem og fína ferðatölvu, allt á kostnað fyrirtæk- isins. Þá fara þeir gjarnan fram á að fyrirtækið greiði verulegar viðbótarlífeyrisgreiðslur í séreignasjóði þeirra. Hlutdeild í hagnaði, kaupréttur á hlutabréfum og ýmiss konar bónusar fara vaxandi. Hvað um það, eftir því sem forstjórinn er með meiri hlunnindi, þeim mun dýrara verður að segja honum upp. Eins árs uppsagnarfrestur þýðir að fyrirtækið skuldbindur sig til að greiða forstjóranum laun og láta hann fá öll önnur hlunnindi í eitt ár eftir að honum er sagt upp. Flest fyrirtæki kjósa hins vegar að láta forstjórana fara strax og gera upp við þá. SH Góð lexía: Uppsagnartími forstjóra ætti oftast að vera á bilinu 6 mánuðir til eins árs. Ekki lengri. Eftir því sem for- stjórar hafa meiri hlunnindi í starfi því dýrara verður að segja þeim upp og því kostnaðarsamari verður starfsloka- samningurinn. 4Hvert er hlutverk stjórna? (Var stjórn Símans máttlaus og áhugalaus?) Meginhlutverk stjórna er að móta stefnu fyrirtækja, ráða forstjóra og meta frammistöðu þeirra reglulega, hafa eftirlit með því að markmið náist, gæta hagsmuna allra hluthafa, taka ákvarðanir um stórar skuldbindingar, eins og ijárfestingar og stórar lántökur, og síðast en ekki síst; veita forstjórum ráðgjöf. Þetta er gott og gilt. Landssímamálið sýnir okkur þó í hnotskurn að viðskipti snúast um fólk; samskipti samverkamanna og upplýsingastreymi þeirra á milli. Þrátt fyrir klaufaskap og vandræðagang hefði Landssímamálið aldrei orðið að því máli sem það varð ef Hreinn Loftsson, formaður einkavæðingarnefndar, hefði ekki komið með ásakanir sínar um óstjórn fyrirtækisins í ljárfestingum og að það hefði verið rekið eins og hlutabréfasjóður. Þar hjó Hreinn nefnilega ekki að Þórarni, hinum brottrekna forstjóra, heldur að stjórn Símans sem tók og átti að taka ákvarðanir um stórar skuld- bindingar fyrirtækisins. Fræi efasemda var sáð. Fólk og fjöl- miðlar hugsuðu sem svo: Hvað var eiginlega um að vera? Var bara ekki líklegt að stjórnarmenn, sem ekki einu sinni vissu um að Þórarinn væri ráðinn til fimm ára og höfðu ekki áhuga á kjarasamningi hans, hefðu allan tímann verið illa upplýstir um stjórnun og fjárfestingar fyrirtækisins? Sinntu þeir nokkuð eftirlitsskyldu sinni? Stóðu þeir sig í stykkinu? Eigandi Símans, ríkið, taldi að stjórnin hefði ekki staðið sig í stykkinu og skipti um alla stjórnarmenn á aðalfundinum. Takið eftir; ábyrgðin var stjórnarinnar þegar öllu var á botninn hvolft. Auðvitað hafa allir velt því fyrir sér hvort stjórnarmenn í Landssímanum hafi verið áhugalausir um fyrirtækið og ekki spurt gagnrýninna spurninga. Hvers vegna í ósköpunum vissu stjórnarmenn ekki í upphafi að ráðningartími Þórarins var til fimm ára? Og hvers vegna vissu stjórnarmenn ekki að stjórnar- formaðurinn, Friðrik Pálsson, sendi inn reikninga fyrir ráð- gjafarvinnu sína sem var umfram eðlileg störf hans sem stjórnarformanns? Hvarflaði aldrei að stjórnarmönnum að spyijast fyrir um það hvort Friðrik, sem var tímunum saman í störfum fyrir fyrirtækið vegna einkavæðingar þess, m.a. erlendis, væri í sjálfboðavinnu? Er líklegt að stjórnarformenn séu á þönum úti um allt, vikum og mánuðum saman, fyrir hönd 52
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.