Frjáls verslun - 01.02.2002, Page 55
ORRAHRÍÐIN í KRINGUM LflNDSSÍIVlflNN
Allt er þetta svo sem gott og blessað og lætur svo sem ekki
illa í eyrum. En það breytir engu. Það er með ólíkindum að
hann skyldi gagnrýna fyrirtækið með þeim hætti sem hann
gerði eftir að hafa stýrt söluferlinu á Landssímanum og borið
hvað mesta ábyrgð á því - og eftir að þúsundir smárra hlut-
hafa á meðal almennings höfðu í góðri trú keypt bréf í fyrir-
tækinu. Hreinn er stjórnarformaður Baugs og sagði af sér
formennsku í einkavæðingarnefnd í kjölfar þess að Davíð
Oddsson forsætisráðherra lét þau orð falla á Alþingi að til
greina kæmi að skipta Baugi upp ef hann misnotaði markaðs-
ráðandi stöðu sína á matvælamarkaði. Hreinn var því augljós-
lega mjög reiður þegar hann lét orð sín um stjórnun Lands-
símans falla í viðtalinu við Viðskiptablaðið. Auk þess höfðu
orð Hreins á sér þann brag að hann væri vonsvikinn yfir því
að ekki hefði tekist að selja kjölfestuflárfesti 25% hlut í fyrir-
tækinu og þyrfti því að kenna einhverjum öðrum um en
einkavæðingarnefnd að sala Landssímans hefði mistekist. Að
vísu er svolítil þversögn í gagnrýni hans því á einum stað í við-
talinu segir hann orðrétt: „Ég held að þegar fram í sækir
muni menn sjá að þeir fá ekki tækifæri til að kaupa eins öfl-
ugt fyrirtæki og Landssímann á svo góðu verði. Þetta fyrir-
tæki býður upp á ótrúlega möguleika fyrir þá sem vilja flár-
festa í því.“
í stjórnun er margt hægt að læra af ásökunum Hreins
Loftssonar um Landssímann eftir að hann sagði af sér for-
mennsku í einkavæðingarnefnd, en henni hafði hann stýrt frá
upphafi. Fyrir það fyrsta eiga menn aldrei að tjá sig í ein-
hverju reiðikasti við íjölmiðla. í annan stað var tímasetning yf-
irlýsingar hans kolröng. En umfram allt átti hann að vera
löngu búinn að segja af sér formennsku í einkavæðingar-
nefnd ef viðhorf hans var með þessum hætti gagnvart Síman-
um og hugur fylgdi ekki máli hjá honum þegar hann hratt af
stað sölu á hlutabréfunum í Símanum sl. haust.
Það var því miður of seint fyrir stjórnvöld að komast að
þeirri niðurstöðu sl. haust, eftir að sala til almennings og fag-
ijárfesta var afstaðin, að engin önnur leið væri fær en að segja
Þórarni upp. Það átti augljóslega að vera búið að taka af skar-
ið í þessu máli áður en útboð og sala Símans fór fram og til-
greina ástæðurnar í fréttatilkynningu þótt það væri afar við-
kvæmt og eldfimt mál vegna fyrirhugaðrar sölu. Borðið átti
umfram allt að vera hreint þegar að sölunni kom; hasarinn í
kringum Þórarin átti aldrei að koma upp í miðju söluferlinu.
Kaupendur áttu heimtingu á að vita það áður en þeir keyptu
að m.a. forsætisráðherra og formaður einkavæðingarnefndar
teldu að margt væri hægt að setja út á stjórnun fyrirtækisins
og að ýmsar ljárfestingar þess væru vafasamar og rnyndu
ekki skila þeim arði í framtíðinni sem vonast væri eftir. H3
Góð lexía: Fæst orð bera minnsta ábyrgð. Tjáið ykkur
aldrei í einhveiju reiðikasti við ijölmiðla. Formennsku í
nefndum fylgir mikil ábyrgð og henni lýkur ekki þótt menn
segi sig úr nefndum. Menn eiga frekar að segja af sér en
gagnrýna eftir á.
Dömuúr 18kt gull og eðalstál,
sett alls 56 demöntum 32pt.
Perluskel í úraskífu sett
8 demöntum.
RAYMOND WEIL
GENEYE
www.raymond-weil.com
55