Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2002, Page 81

Frjáls verslun - 01.02.2002, Page 81
Sérblað um Þyskaland Kvensamur fursti Skemmtilegu borgina Karlsruhe þekkja margir íslendingar. Hún er mikil skólaborg og þeir eru ófáir sem lært hafa þar og fögin margvísleg. Borgin liggur vel. Það er ekki nema um 40 mínútna ferð til Baden Baden og örlítið lengra til Freiburg. Karlsruhe er skemmtilega skipulögð borg og á furstinn Karl Wilhelm II heiðurinn af því að hafa byggt hana. Karlinn sá lagðist einn daginn undir tré og sofnaði og dreymdi götur sem kæmu eins og blævængur út frá höll sem hann sjálfur byggi í. Þannig gæti hann alltaf fylgst með þegnum sínum og þeir alltaf notið þess að hafa útsýni að höllinni og dýrðinni þar. Þetta var árið 1712 eða þar um bil og Karl þessi hafði fundið fyrir streitu og látum borgarlífsins í Baden Baden, þaðan sem hann var upp- runninn og sá alveg fyrir sér hversu mikla slökun hann fengi þarna úti í sveit. F.kki mátti gleyma þvi að hann var kvensamur með afbrigðum og kona hans var lítt hrifin af því að finna ástmeyj- arnar út um alla höll og þvi upplagt að geyma þær í Karlsruhe, íjarri eiginkonunni. Árið 1715, þann 17. júní var Karlsruhe form- lega stofnuð og því vel við hæfi að íslendingar séu þar við nám og störf. Furstinn stóð við sitt og út frá höllinni, sem er gríðarstór og Fjós við aðalgötuna. Bóndinn þurjti rétt að gá til veðurs á meðan maddaman hreinsaði smávegis til í kring um kúna. eru líka margir tungumálaskólar fyrir útlendinga og hafa íslenskir nemendur ekki farið varhluta af því. Miðborg Freiburg er alveg laus við bílaumferð og jmdislegt að rölta þar um eld- gamlar götur. Fara upp í Schlossið, gamalt veitingahús sem stað- sett er efst á hæð og horfir yfir Svartaskóg og dalinn. Það er meira að segja hægt að skoða Sviss, eða ímynda sér að maður sjái Sviss þaðan. Dómkirkjan blasir við ofan af Schlossinu og þek sem ekki vilja ganga upp aflar tröppurnar geta faiið í lyftu. Stór bjórgarður er við hlið veitingahússins og á „næstu hæð“ er útsýnispallur og bekkir. Eins og annars staðar í Þýskalandi er augum ferðalangs gul að lit, liggja göturnar eins og blævængur. Til að auka enn á áhrifin, er hinum megin við höflina garður sem er hálfhringlaga lika og sniðinn á sama hátt. Þar er að finna tjörn, stórar flatir og túlipanagarðinn en Karl elskaði túlipana jafnheitt og konur og safnaði tegundum af ástríðu. Reyndar fengu hjákonurnar sumar hverjar það hlutverk að teikna túlipana fyrir hann og eru margar af teikningunum til ennþá og notaðar á kort sem hægt er að kaupa víða. Praktískur maður Karl fursti. Glaumur og gaman í þessum ágæta hallargarði halda íbúar borgarinnar gjarnan hátíðir. í júlí er haldin gríðarstór hátíð þar sem tónlistarmenn fi"á öllum mögulegum og ómögulegum þjóðum og þjóðarbrotum koma saman og sýna listir sínar, dansa og syngja. Farin er margra klukkustunda löng skrúð- ganga sem fer auðvitað fram hjá ráðhúsinu þar sem borgarstjór- arnir (þeir eru nokkrir þar sem allar litlu útborgirnar sem sam- einast hafa stóru borginni eiga sér sinn borgar- eða bæjarstjóra) horfa á hópana í skrautlegum búningum leika listir sínar. Böðin í Baden Aðeins neðar á kortinu er fallega borgin Baden Baden sem helst má ekki sleppa að skoða, sé á annað borð verið að fara um þessar slóðir. Böðin í Baden hafa löngum verið fræg og sérstaklega sundlaugin þar sem fólk baðar sig nakið. En Baden býður upp á margt fleira. Stórkostlega tón- listaraðstöðu, frábærlega fallegan bæ og menningu sem stendur á gömlum merg. Víða í suðurhluta Þýskalands og ekki síst þarna er varla hægt að ímynda sér að maður sé staddur í stórborg því húsin sjást hreinlega ekki fyrir gróðri. Skólaborgin Freiburg er skólaborg Ukt og Karlsruhe en þar eru að jafnaði um 100 þúsund manns í skóla allsstaðar að úr heim- inum. Tónflst er sterkur þáttur í náminu og margir nemendur frá Austurlöndum, ekki síst Japan og Kína stunda nám þar. En það sterk hefð fyrir tónlistarflutningi og stöðugt verið að flytja skemmtileg verk, stór og smá. Stutt er yfir til Sviss og Frakklands og borgin hreinlega býður upp á að manni Hði vel. Kaiserstuhl vínframleiðslusvæðið er örskammt frá og þar er hægt að fara í skoðunarferðir um víngerðina og smakka afurðirnar fyrir Htið fé og fá leiðsögn á ensku ef þýskan hefur orðið eftir heima. Farið með Ríll Ég ók eitt sinn meðfram Rín og gerði það að reglu minni að gista bara í Utlum eða meðalstórum bæjum og fara aldrei út fyrir „sveitavegina," sem reyndar eru eins og finustu þjóðvegir á okkar mæflkvarða. í einum sHkum bæ uppflfði ég það sem hér myndi aldrei koma fyrir. Ég vaknaði fremur snemma og ákvað að fá mér gönguferð til að skoða umhverfið og gekk niður aðalgötuna. Rétt eftir að ég kom út á hana heyrði ég baul í kú og leit upp. Sá þá að í húsinu á móti var bóndi að teyma kú út úr íjósi og Htill traktor var þar staddur Hka. Konan hans, þéttvaxin og maddömmuleg, skaust með fötu með mjólk niður götuna og ég fór á eftír henni, forvitin að vanda. Hún fór með mjólkina inn í bakarí sem var í einu húsinu og þar væru nú ekki kjöraðstæður að mati heilbrigðiseftirlits Reykjavikur. Konan skildi mjólkina eftir og fór í kjörbúðina sem greinilega hafði ekkert breyst ifá upphafi aldarinnar og lagerinn var samsafn af öllu því sem komið hafði í búðina síðan. Ég gekk til baka og sá að bakarinn fór með nýbökuð og falleg brauð inn í hótel sem þar var eða Gastehaus og þá heyrði ég gagg í hænu. I garðinum í næsta húsi við voru nokkrar hamingjusamar hænur að verpa eggjum handa íbúum og gestum og hirtu ekki hætishót um búr og sótthreinsun en voru feitar og pattaralegar og hæstánægðar með tilveruna þar sem þær tíndu upp skordýr og ánamaðka í garðinum. Ég sá fyrir mér uppfltið á nágrönnum mínum ef ég reyndi þetta... og leyfin 720 sem þarf að fá hér á landi ef maður svo mikið sem andar þeirri hugsun út að ætla sér að koma nálægt því að gefa fólki að borða og fá borgað fyrir það... S3 81
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.