Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2002, Page 85

Frjáls verslun - 01.02.2002, Page 85
Sérblað um Þyskalancl ,U heStamyrSl {Þ***"* « *r eftirsZZ Z^Z. * aldrei verið til, heldur er þetta fólk sam- safn griðarlega margra menningarhópa, sem byggja 15 lönd og borgir í Sam- bandslýðveldinu Þýskalandi. Margir Þjóðverjar elska allt sem íslenskt er, í Þýskalandi eldra fólk sérstaklega með nokkra menntun litur til goðafræð- innar og uppruna okkar sem stóran hluta af vestrænni menn- ingu. Yngra fólkið litur frekar til okkar sem ímyndar hins hreina og ómengaða hluta jarðarinnar. Þetta hjálpar okkur mikið við kynningu á því sem við aðhöfumst og framleiðum á Islandi þ.e. vörum og þjónustu. Þjóðverjar almennt líta gjarna á okkur sem menningarþjóð, stórt nafn að standa undir, en því orðspori meg- um við ekki fyrir nokkra muni glata.“ í hverju er starf markaðsráðgjafa fólgið? Mitt starfssvið er í raun að stýra frekari markaðssetningu á Islandi inn í sölukerfið. Við erum að móta hvernig hægt er að byggja upp góða þjónustu við söluaðila Islandsferða. Við bjóðum aðstoð við markvissa kynningu á skilgreindum ferðum á Islandi og einbeitum okkur að því að selja fremur en að vera með almenna fræðslu. Við þjálf- um upp ferðaskrifstofufólk sem kemur til með að selja Þjóðverj- um ferðir til Islands, en sumar af þýsku ferðaskrifstofunum reka skóla fyrir sitt starfsfólk. Þýskt markaðssvæði telur um 100 millj- ónir manna og því er það mikilvægt að fyrirtækin sem eru að kynna landið, hvort sem þau eru íslensk eða erlend, vinni sam- an og nýti þannig bæði mannafla og peninga. En Útflutningsráð sinnir ekki aðeins þörfum íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í Þýskalandi, þvi að margskonar fyrirtæki líta þýska markaðinn hýru auga. Benny Sorensen hefur annast markaðsráðgjöf í Þýskalandi fyrir Útflutningsráð í samvinnu við Ruth Bobrich, viðskiptafulltrúa í sendi- ráðinu í Berlín. Gyða L. Jónsdóttir verkefn- isstjóri hefur verið tengiliður íslensku fyrir- tækjanna. „Við byijuðum með Jjögur fyrir- tæki í Þýskalandi og hefur það gengið mjög vel. Flestir þekkja orðið sögu No Name sem einmitt fór þessa leið og er nú orðið nokkuð vel kynnt fyrirtæki í Þýskalandi. Benny Sorensen, sem starfað hefur sem markaðs- ráðgjafi erlendis frá því á síðasta ári, sá um að koma No Name á markað. Auðvitað hefur það gert gæfumuninn að Þjóðverjar kunna mjög vel að meta vörur fyrirtækisins og það sem að baki liggur." Annað fyrirtæki sem nýlega hefur hafið sókn á Þýskalandsmarkað er SDS-smyrsl ehf., lítið fyrirtæki sem framleiðir græðandi jurta- smyrsl af ýmsu tagi. „Vöxtur SDS-smyrsla er í raun eins og æv- intýri," segir Gyða. „Þetta pínulitla fyrirtæki sem byrjaði í eld- húsi tveggja kvenna er nú orðið nógu stórt til að selja á markaði erlendis. Konurnar tvær, þær Sigríður Einarsdóttir og Daðey S. Daðadóttir, sem fyrir nokkrum árum hófu að búa til smyrsl heima hjá sér til að vinna bug á langvinnu exemi, stofnuðu fyrir- tækið saman og hafa með tímanum þróað og framleitt smyrsl, bæði fyrir dýr og menn. Núna eru það hestar sem þær leggja að- aláhersluna á og hafa m.a. komið tveimur framleiðsluvörum sín- um í stóran vörulista, Kramer, sem selur allt fyrir hesta. Þær hafa lagt þróun mannasmyrsla á hilluna í bili og ætla að einbeita sér að hestasmyrslum, enda eru Þjóðverjar miklir hestamenn og talsvert er af íslenskum hestum í Þýskalandi.“ Útflutningsráð skipuleggur þátttöku fyrirtækja í sýningum erlendis, þar á meðal í Þýskalandi. Liftæknisýningin Biotechnica var haldin í október og tóku þátt í henni fyrirtækin Bio-Process, Ensímtækni og Prokaria. Þetta er í fyrsta sinn sem skipulögð er þátttaka í sýningu af þessum toga. „Undanfarin ár höfum við sótt hugbúnaðarsýningu í Hannover og hafa 4-8 fyrirtæki að jafnaði tekið þátt í henni,“ segir Vilhjálmur Jens Arnason, forstöðumað- ur sýningarsviðs. „Við komum einnig að Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem haldið er annað hvert ár. Þar er veglega að verki staðið, en íslenski hesturinn er afar vinsæll í Þýskalandi svo og allt sem honum tengist. Framundan er þátttaka í Interzoo, geysistórri sýningu í Þýskalandi sem ætluð er fyrir- tækjum sem framleiða vörur fyrir gæludýr. Þar munu íslensk fyrirtæki bjóða upp á katta- og hundamat unninn úr fiski. Við höfum einnig sótt um pláss á sýningunni Medica næsta haust en hún er ein stærsta sýning heims á sviði heilsutækni og erum við að skoða hug fyrirtækja hér á landi til hennar." Fyrir alla áhugasama um þjónustu og starfsemi Útflutnings- ráðs Islands má benda á vefinn www.utflutningsrad.is BS flnnað fyrirtæki sem nýlega hefur hafið sókn á Þýskalandsmarkað er SDS-smyrsl ehfv Iftið fyrirtæki sem framleiðir græðandi jurtasmyrsl af ýmsu tagi. 85
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.