Frjáls verslun - 01.01.2003, Síða 19
FORSÍÐUGREIN flCO-TÆKNIVAL
Þrautaganga tölvurisans Aco-Tæknivals, ATV, hefur
verið mikil síðustu árin og hefur ekkert lát verið á erfið-
leikunum. Á tiltölulega stuttum tíma hefur verið skipt
þrisvar um forstjóra, nú síðast um miðjan desember þegar
fyrirtækið rambaði á barmi gjaldþrots og Baugur ID og
Eignarhaldsfélagið Fengur keyptu ráðandi hlut af Búnaðar-
banka íslands, eða tæplega 24 prósent hvort félag, á tæplega
80 milljónir króna að nafnvirði. Þetta gerir samtals um 150
milljónir króna.
Nýr maður er nú í brúnni og heitir hann Almar Örn
Hilmarsson. Almar þessi er 29 ára, lögfræðingur að mennt
og framkvæmdastjóri Ágætis til tveggja ára eða þar til Ágæti
og Ávaxtahúsið voru sameinuð í haust Kaupin á ATV má
rekja til Pálma Haraldssonar, framkvæmdastjóra Fengs, sem
kvæntur er systur Almars. Pálmi hefur áhuga á að kaupa illa
stödd fyrirtæki, reisa þau við og selja. Baugur hefur fjárfest í
smásöluverslun en ekkertkomið að tölvugeiranum. Þeir eru
ekki margir sem hafa taugar í svo áhættusama ijárfestingu
en Pálmi hefur átt farsælt samstarf við Jón Ásgeir Jóhannes-
son, forstjóra Baugs, og leitaði því til hans. Almar er ungur og
hefur litla reynslu í tölvu- og raftækjageiranum en er staðráð-
inn í að snúa rekstrinum við fljótt og vel. Ljóst er að hann
hefur ekki langan tíma því að Pálmi er óþolinmóður
maður. Fijáls verslun hefur heimildir fyrir því að
hann vilji sjá augljós batamerki fyrir vorið og
reksturinn verði kominn í
ásættanlegt horf í lok ársins.
Ef það tekst ekki verður
væntanlega hægt að
hluta reksturinn niður
og selja í einingum.
T.d. er talið að
hægt sé að selja
BT á 250-300
milljónir.
„Við höfum fylgst með því sem er að gerast á þessum
markaði. Þetta fyrirtæki er umfangsmikið í smásölu og
eftir að hafa skoðað það töldum við að það væru tækifæri
í þessum rekstri. Við höfðum áhuga á að taka þátt í því,“
segir Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður
ATV og framkvæmdastjóri hjá Baugi ID, um ástæður þess
að Baugur kom inn í ATV.
Spyrnt við fótum Niðursveiflan í tölvugeiranum hefur
verið afdrifarík fyrir mörg fyrirtæki og hefur ATV ekki
farið varhluta af því. Saga fyrirtækisins hefur haldist í
hendur við samdráttinn á tölvumarkaði og hefur lítið
gengið þó að menn hafi reynt að spyrna við fótum. Strax í
árslok 1997 má segja að hafi farið að síga á ógæfuhliðina.
Árið 1998 hélt þróunin áfram en 1999 reyndist félaginu
ákaflega erfitt og einkenndist af mikilli endurskipulagn-
ingu og fjárfestingum bæði innandyra og utan í stað þess
að fara í sparnað og aðhald. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, var fenginn í starf forstjóra vorið 1999. Hug-
búnaðarsvið Tæknivals var selt og hugbúnaðarfyrirtækið
Ax stofnað. Erfiðleikar voru hjá Compaq, einum helsta
erlenda samstarfsaðila Tæknivals, og hafði það sín áhrif.
Árið 2000 skilaði Tæknival hagnaði, einkum vegna þess að
í lok ársins keypti Þyrping húseignir fyrirtækisins í Skeif-
unni og á Akureyri fyrir rúmar 800 milljónir og nam sölu-
hagnaðurinn 97 milljónum króna. Hagnaðinn má líka rekja
til sölunnar á hugbúnaðarsviðinu frá árinu áður. Tæknival
leigði húsnæðið aftur af Þyrpingu og er ekki hægt að
breyta þeim samningi. Gróflega má áætla að leigan sé um
8 milljónir króna á mánuði til 15 ára, eða tæpar 100 millj-
ónir á ári. Samningurinn þykir barn síns tíma - ágætur
þegar hann var gerður - en í dag alltof dýr.
Árið 2001 kom niðursveiflan fram af fullum þunga í rekstri
Tæknivals og nam tapið hvorki meira né minna en rúmum
einum milljarði króna. Ýmsar innri og ytri aðstæður höfðu
sín áhrif. Útgjöld og fjárfestingar fyrirtækja og einstakfinga
drógust verulega saman. Gengislækkun krórmnnar nam
tæpum 15 prósentum og var nánast um „rothögg" að ræða,
eins og heimildarmaður Fijálsrar verslunar orðaði það, ekki
síst vegna erlendra skulda upp á rúman milljarð auk þess
sem öll vörukaup fyrirtækisins voru í erlendri mynt. Tölvu-
verslun nfinnkaði verulega í landinu þetta ár og salan hjá
Tæknivali hrapaði um þriðjung. Fyrirtækin Ijcigur, Tæknival,
Nýheiji, EJS og Opin kerfi, börðust liarkalega um hvern við-
Margir velta fyrir sér hvort yfirtökutilboðs
megi vænta þar sem nýir eigendur eiga um
48 prósent í félaginu og reyndar alls 58
prósent ef hlutur Ragnars Kristins
Kristjánssonar í Flúðasveppum er talinn með
því að annars séu smærri hluthafar lokaðir
inni í félaginu. Þetta stendur þó ekki til.
19