Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 66
Fundir og ráðstefnur eru miseftirminnilegar. Einstaka sinnum situr eftir
atvik eða uppákoma sem afog til kemur upp í kollinn oggaman getur
veriö að segja frá. Nokkrir kunnir aðilar rifja upp eftirminnileg atvik.
Ráðstefnugolf
Við héldum upp á 100 ára afmæli útibús Landsbankans á Akur-
eyri í fyrrasumar með ráðstefnu um sjávarútvegsmál sem tókst
í alla staði vel,“ segir Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri
Landsbankans. „Það komu ljölmargir gestir og við buðum þátttak-
endum m.a. að taka þátt í golfmóti sem ætlunin var að halda eftir
ráðstefnuna. Þetta átti ekki að vera mikið mál um mitt sumar, í júní,
sem maður reiknar með að sé einn besti tími ársins til útiveru.
Hins vegar fór þetta ekki alveg eins og áætlað var því að hitastigið
var í kring um þrjár gráður og allhvass vindur blés á okkur við
golfiðkunina. Mönnum var því heldur kalt en létu það ekki á sig fá
og mótið tókst í alla staði ágætlega þrátt fyrir þetta. En ég mæli
ekki sérstaklega með því að halda golfmót í slíku veðri.“ H3
Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri Landsbankans.
Vinsælar skoðunarferðir
Hvort heldur sem ráðstefna er haldin innan höfuðborgarsvæðisins eða
úti á landi er ljóst að ákveðnir þættir eru þungavikt í afþreyingu. Skoð-
unarferðir af ýmsu tagi eru efstar á blaði en samkvæmt því sem skipu-
leggjendur ráðstefna og funda segja, hefur það færst mjög í vöxt að fólk vilji
taka beinan þátt í þvi sem gert er. Ekki bara vera áhorfendur og þiggjendur.
Þannig hafa ævintýraferðir færst í vöxt þar sem jöklaferðir, flúðasiglingar
G,rafting“) og jeppaferðir um hálendið eru sennilega vinsælastar. Fjölmörg
fyrirtæki hafa sprottið upp í kring um slíkar ferðir og hafa þau flest góða
samvinnu við ferðamálayfirvöld og þá sem kynna möguleika landsins.
Allir Út! Oft flokkast slík afþreying undir makadagskrá en það er þó sífellt
algengara að gestir ráðstefna taki að miklu leyti þátt í henni. Það á ekki síst
við ef fundurinn eða ráðstefnan flokkast undir „peppfundi" eða slíkt. Þó er
orðið býsna algengt að erlendir gestir lengi ferðir sínar í annan endann og
njóti afþreyingar hér á landi enda þykir landið spennandi og enn sem komið
er að minnsta kosti - nokkuð öruggt. Að minnsta kosti fyrir ýmsum hryðju-
verkum þó náttúra landsins sé óblíð og taki stundum hart á mönnum.
Víst er að ísland sem ráðstefnuland á sér mikla framtíð og er spennandi
kostur. Ekki bara fyrir væntanlega ferðamenn hingað til lands heldur einnig
þjóðina sem slíka. Og ekki má gleyma því að erlendir gestir sem hingað
koma á ráðstefnur skilja eftir mikið fé og eru velkomnir gestir. H3
66