Frjáls verslun - 01.01.2003, Síða 68
Ráðsteftiulandið ísland
Island verður æ vinsælla sem ferðamannaland, enda þykir
það bæði skrítíð og skemmtilegt. Kynningin er þó ekki
alveg sjálfvirk, eins og Rósbjörg Jónsdóttír hjá Ráðstefnu-
skrifstofu Islands segir frá.
A örfáum árum hefur Island færst frá því að vera land sem
helst var þekkt fyrir að hýsa ísbirni og eskimóa og til þess að
vera hreinlega í miðju alheimsins, mitt á milli Evrópu og
Ameríku og á allra vörum að auki. Uppátæki þekktra
Islendinga vekja alheimsathygli og þegar þjóðarleiðtogar
ákveða að hittast hér á landi, fylgist allur heimurinn með
hverri hreyfingu. Við gleymum líklega seint ástríðufullum
lýsingum Ingva Hrafns, fréttamanns Sjónvarps, þegar hann
beið eftir því hvort hurðin á Höfða opnaðist og hver kæmi út
á minnisstæðum fúndi í Höfða 1986 og upptökuvélar allra
fréttastofa fylgdust með.
Island er sem sagt rækilega komið á kortið sem ráðstefnu-,
funda- og frítímastaður. Það er ekkert skrítíð. Island þykir
spennandi og öðruvísi og kannski er yfir því svolítill ævintýra-
blær. Landið sem fóstraði Björk, landið þar sem eldgos verður
í miðri byggð og heimamenn skreppa frá í nokkra daga og
koma svo aftur til að moka húsin sín upp úr gjallinu og halda
lífinu áfram eins og ekkert hafi í skorist.
Mitt á milli „Kostir íslands eru fyrst og fremst þeir að
hingað er stutt að fara þar sem við erum svo miðsvæðis,“
segir Rósbjörg Jónsdóttir hjá Ráðstefnuskrifstofu Islands.
„Hér er líka ágæt aðstaða bæði til gistingar og ráðstefnuhalds
en þó skortir okkur ennþá 5 stjörnu hótel og ráðstefnuhöll
sem er ákveðinn veikleiki Hins vegar má ekki gleyma því að
verið er að bæta aðstöðuna verulega sem kemur til með að
styrkja okkur mikið. Tæknileg þjónusta er hér góð og þeir
sem henni sinna standa mjög framarlega. Einnig er sérstaða
landsins talsverð og afþreyingarmöguleikar eru hér miklir en
það er mjög góður sölumöguleiki þegar verið er að kynna
nýja áfangastaði."
Rósbjörg segir þá sem halda ráðstefnur um allan heim
stöðugt vera að leita að nýjum áfangastöðum sem hafa ákveðna
sérstöðu. „Sérstaða okkar er öðru fremur nálægðin við nátt-
úruna og stuttar vegalengdir hvert sem litið er. Hér getur fólk
verið á stífum fundum fr am eftir degi en samt fundið tíma til að
að njóta lífsins. Það að geta boðið upp á skemmtilega og fjöl-
breytta afþreyingarmöguleika er gríðarlega mikilvægt og við
getum það svo sannarlega.“
Að homa landinu á kortið Ráðstefnuskrifstofa íslands var
stofnuð í maí 1992. Meginhlutverk skrifstofúnnar er að mark-
aðssetja ísland sem ákjósanlegan áfangastað til ráðstefnuhalds
og hvataferða á alþjóðamarkaði. Auk þess ber Ráðstefnuskrif-
stofu íslands að vekja áhuga Islendinga í alþjóðasamskiptum á
að halda ráðstefnur sinna fagfélaga hér á landi. Að baki
Ráðstefnuskrifstofu Islands standa Ferðamálaráð Islands,
Reykjavíkurborg, Flugleiðir, sérhæfðir fagskipuleggjendur
ráðstefna og hvataferða, leiðandi hótel á sviði funda og ráð-
stefna, Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, ýmis veitingahús auk
annarra aðila er hagsmuna eiga að gæta á sviði ráðstefnuhalds.
„Okkar hlutverk er fyrst og fremst að koma landinu á
kortið,“ segir Rósbjörg. „Við sækjum ráðstefnur og fagsýn-
ingar erlendis þar sem við hittum fulltrúa frá umboðsskrif-
stofum erlendis og ákvörðunaraðila stórfyrirtækja og reynum
að sannfæra þá um að ísland sé góður kostur. Auk þessa
stöndum við fyrir móttökum og viðburðum fyrir erlenda jafnt
sem innlenda gestí hér á landi.
Það er líka eftir nokkru að slægjast því hver einstakur
gestur, sem hér kemur, skilur eftír vel á annað hundrað þúsund
krónur auk margfeldisáhrifanna sem heimsókn hans hefur.
Það er ef tíl vill hægt að segja sem svo að ferðamanna-
iðnaðurinn og það að markaðssetja landið vel fyrir ráðstefnur
og fundi sé verðmæt fjárfesting til framtíðar og hefur þver-
fagleg áhrif á uppbyggingu atvinnu í landinu." S9
68