Frjáls verslun - 01.01.2003, Side 70
í Eldborg eru fallegir salir sem henta vel fyrir fundi og mannfagnaði.
Anna G. Sverrisdóttir, aðstoðar-
framkvœmdastjóri Bláa lónsins.
Bláa lónið og Eldborg:
Glæsilegustu
fundarsalir landsins
Fundar- og rábstefnusalirnir vid Bláa lónið og í
Eldborg (800 metra frá Bláa lóninu) eru
einstakur kosturfyrir fundi og mannfagnaði.
Eftír Vigdísi Stefánsdóttur
Töfrandi umhverfi Bláa lónsins laðar að fólk sem vill slaka á í
hlýju lóninu, fá kísilmaska og nudd eða bara eiga góða stund
í veitingasalnum. Bláa lónið laðar líka að þá sem vilja halda
fundi, ráðstefnur eða efna til mannfagnaðar í glæsilegum fundar-
og ráðstefnusölum.
„Þeir sem vilja mynda óvenjulega stemningu, vera í eftirminni-
legu umhverfi og nota orkuna sem íslensk náttúra býður upp á,
eru á réttum stað í Bláa lóninu,“ segir Anna G. Sverrisdóttir,
aðstoðartramkvæmdastjóri Bláa lónsins hf. Staðsetning Bláa
lónsins er alveg tilvalin og þarna er íslensk hönnun upp á sitt
besta og spilar vel við hrátt umhverfið. Orkan á Reykjanesi er
næstum áþreifanleg og ætti þvi að hafa jákvæð áhrif á sköpunar-
kraftinn. Um leið er umhverfið kyrrlátt og Ijarri amstri dagsins
en þó svo þægilega nálægt borginni. Það tekur aðeins 40 mín. að
aka frá höfuborgarsvæðinu að Bláa lóninu og einungis 20 mín. frá
Keflavíkurflugvelli og ef óskað er, skipuleggur starfsfólk Bláa
lónsins ferðir á fundarstað og bókar hótelgistingu íyrir funda- og
ráðstefnugesti."
Blaa lónið Við Bláa lónið er fundarsalur sem rúmar allt að 100
manns. Salurinn er á annarri hæð með stórum gluggum til
suðurs og vesturs og útsýni sem minnir á lifandi málverk sem
tekur breytingum eftir árstíðum. í salnum eru sérhönnuð funda-
húsgögn og fullkominn tækjabúnaður til fundahalds af hvaða tagi
sem er.
„Eg held að ég megi segja að aðalsalur heilsulindarinnar við
Bláa lónið sé meðal glæsilegustu sala landsins,“ segir Anna. „Sjö
metra háir glerveggir og útsýni yfir lónið gefa viðburðum sem
þar fara fram ævintýralegt yfirbragð og sé verið að kynna landið
td. útlendingum, fæst varla betri staður. Salurinn er rúmgóður
og tekur allt að 350 gesti í sæti og 500 í standandi móttöku.“
Eldborg í Eldborg, 800 metrum frá Bláa lóninu, er að finna þrjá
af tæknivæddustu fundarsölum landsins. Þar nýtur falleg innan-
hússhönnun sín vel í samræmi við stórbrotið landslagið sem
virðist flæða inn um gluggana. Hægt er að opna felliveggi og sam-
eina salina í einn sal sem rúmar allt að 300 manns. I Eldborg er
líka glæsileg aðstaða búin hágæðahúsgögnum lyrir minni fundi.
Þar geta alls 14 manns látið fara vel um sig um leið og málin eru
rædd. „Þetta er „executive" fundarherbergið okkar,“ segir Anna.
Svo brosir hún stríðnislega og bætir við: „Maður fær það
ósjálfrátt á tilfinninguna að þarna sé hægt að taka mikilvægar
ákvarðanir."
I hraunlögðum kjallara Eldborgar er svo að finna Gjánna,
skjálfandi „upplýsingaeldstöð" sem fúll er af fróðleik um jarð-
fræðisögu Islands. Kjörið að kíkja á þessa sýningu í fundarhléum.
Hraunborg Hraunborg sem hefur um árabil verið starfrækt
undir nafninu Jenný er staðsett steinsnar frá Bláa lóninu. Bláa
lónið hefur þegar tekið við veitingahúsinu og verður það fram-
vegis starfrækt undir nafninu Hraunborg. Húsið verður ekki
rekið sem hefðbundinn veitingastaður heldur verður áhersla
lögð á leigu þess til einkasamkvæma. Salurinn, sem rúmar allt að
150 gesti, er bjartur og skemmtilegur og hentar vel iyrir fundi og
manniagnaði t.d. afmæli og árshátíðir. 35
Fallegt útsýni er frá sölum Eldborgar.
Eldborg erstaðsett aðeins 800 metra frá Bláa lóninu.
70