Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2003, Qupperneq 111

Frjáls verslun - 01.01.2003, Qupperneq 111
UINUIVlFJðLLUN SIGMARS B. Hrogn, lífur og rauðvín Einn af þekktari matreiðslu- mönnum Evrópu er Svisslendingurinn Werner Vögeli en hann er matreiðslumeistari Svíakonungs og átti ásamt öðrum hið fræga veitingahús í Stokkhólmi, Oper kállaren. Werner hefur meðal annars skrifað skemmtilega bók um mat og matarhefðir í Norður-Noregi, Finnlandi og Norður-Svíþjóð. Meðal uppskrifta í bókinni er soðinn þorskur með hrognum og lifur. Werner hafði lagað þennan rétt nokkuð að franska eldhúsinu og hafði með honum hvítvínssmjörsósu (beurre blanc). Þegar Werner var staddur hér á íslandi árið 1988 bauð ég honum upp á þennan holla og ljúffenga rétt, en í staðinn fyrir hvítvíns- smjörsósu hafði ég rauðvínssmjörsósu (beurre rouge). Hér kemur uppskriftin að rauðvínssmjörsósunni: Beurre Rouge 1 dl rauðvín 1 dl hvítvínsedik (vínedik) 3 msk fínt saxaður laukur 200 g smjör (á að vera mjúkt) 1 msk sítrónusafi salt og pipar A Sjóðið saman lauk, hvítvínsedik og rauðvín þar til að nánast allur vökvinn hefur gufað upp. Laukurinn á að vera orðinn eins og sulta eða marmelaði. B Hrærið nú smjörið saman við laukinn í pottinum. Þegar smjörið hefur bráðnað má það ekki sjóða. C Potturinn er tekinn af hellunni og smjörsósan bragð- bætt með sítrónusafa og krydduð með salti og pipar. Nú er rétti tíminn til að hafa nýja ýsu, hrogn og lifúr á borðum. Þetta er þjóðlegur og góður réttur sem verður enn betri með rauðvínssmjörsósunni. Gott er að drekka Beujolais með þessum rétti. Hægt er að mæla með Moulin-a-vent frá vínframleiðandanum Georges Duboeuf. Þetta er ljúft og ilmríkt vín, frískandi og er ljómandi með fiski og kemur einstaklega vel út með hrognunum. Rauðvín og súkkulaði Bragðskynjun mannsins er flókin og margbreytileg. Fyrir mörgum árum var ég staddur á einu besta veitingahúsi heims, Pic, í Valance í Suður- Frakklandi. Eftir matinn kom aðvífandi að borði okkar vagn fullur af súkkulaði og súkkulaðitertum og eftir- réttum. Við vorum með stórbrotið rauðvín úr Rhone- dalnum í glösum okkar. Ég ætlaði að ljúka við hið himneska vín áður en við gæddum okkur á súkkulaðinu. Vínþjónninn hvatti okkur hins vegar til að bragða á súkkulaðinu með víninu. Það er skemmst frá því að segja að þetta varð mikil bragðupplifun. Það kom nefnilega í ljós að rauðvín og súkkulaði passar frábærlega saman - eins og hönd í hanska. Best er að hafa kröftugt rauðvín með súkkulaði og réttum gerðum úr súkkulaði. Rauðvín sem passar vel með villibráð á vel við með súkkulaði. Þarna um árið þegar ég uppgötvaði töfra víns og súkkulaðis vorum við að drekka Cote-Rotie frá Chapou- tier en gott vín frá Chateauneuf-du-Pape er einnig ljóm- andi gott með súkkulaði. Rauðvin - eitt og Sér Eins og áður sagði er ekkert að því að drekka rauðvín eitt og sér. I því sambandi er það algjör- lega undir smekk hvers og eins komið hvaða vín honum finnst best. Góðra vína frá Veneto á Italíu eða frá Kaliforníu er mjög gott að njóta án matar. La Villa Merlot frá Veneto er ekki stórt vín en vex þó með hveijum sopa. Þetta er ljúft vín með góðri fyllingu, þetta er svona vín sem Evrópubúar kalla hversdagsvín eða kjörbúðarvín en sem sagt góð kaup miðað við verð. Önnur saga er hins vegar Masi Campofiorin. Þetta er kröftugt vín með bragði af sveskjum og rúsínum og jafn- vel pipar og negul. Frábært vín til að dreypa á þegar kalt og dimmt er úti. I verslunum ATVR er nú býsna gott úrval af víni frá Kaliforníu. Zinfandel-vínin frá Kaliforníu eru mörg hver frábær. Eitt það besta er Fetzer Barrel Select Zinfandel. Þá er Zinfandel-vínið frá Kendel Jackson ljómandi gott. Rélta hitastigið I fræðibókum um vín er sagt að rétt hita- stig fyrir rauðvín sé stofuhiti. I hugum ílestra Islendinga er stofuhiti um 20° og það er of mikill hiti fyrir öll rauðvín. Hér áður fyrr og jafnvel enn er stofuhiti í Evrópu 16-18°, en 16-17° er hæfilegur hiti fyrir rauðvín. Ung rauðvín eins og t.d. Beujolais mega jafnvel vera 15° heit. Þá er alltaf gott að hella rauðvíninu í karöflu svona 3 klukkutímum áður en þau eru drukkin. 09 Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum rauðvínsteg- undum: Georges Duboeuf - Moulin-a-vent á 1.260 krónur M. Chapoutier - Cote-rotie á 3.050 krónur Paul Jaboulet - Chateauneuf-du-Pape les Cedres á 3.240 krónur La Villa Merlot á 2.190 krónur Masi Campofiorin á 1.390 krónur Fetzer Barrel Zinfandel á 2.090 krónur Kendel Jackson Zinfandel á 1.990 krónur 111
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.