Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 39
Jón Ásgeir Jóhannesson.
Hvort er hann í meiri- eða
minnihlutanum í stjórn
Flugleiða? Skrítin spurning,
ekki satt?
þegar verið er að fjalla um valdablokkir og hvernig þær nýta
sér 35% módelið til að komast til valda í almenningshluta-
félögum í dreifðri eign.
En stöldrum við. Það, sem skiptir alla hluthafa máli, þegar
upp er staðið og hvar í valdablokk sem þeir kunna að vera, er
arðsemin af rekstri fyrirtækja sinna. Engir vilja tapa peningum
- það sameinar menn. Stjórnarmaður 1 fyrirtæki verður að
hugsa um hag allra hluthafa, hann er fulltrúi þeirra allra en ekki
bara nokkurra. Um leið og hann vill bæta eigin hag með þvi að
fyrirtækið gangi betur bætir hann í leiðinni hag allra annarra
hluthafa og gerir hluti þeirra seljanlegri. Þess vegna hafa menn
sagt sem svo að þegar á hólminn væri komið sé ekki til neitt
sem heití meiri- eða minnihluti í stjórnum félaga - hvort sem
það hljómi heimskulega eða ekki. B3
fyrirtæki eru fyrir. Það eru nefnilega neytendur sem gera fyrir-
tæki stór og sterk með því að skipta við þau. Ef fyrirtæki eru
orðin sljó, áhugalaus og svifasein er auðveldara að nýta sér
þessa veikleika og stökkva ferskur inn á markaðinn og keppa
við þau.
Gleymum því heldur ekki að skilin á milli launþega og ijár-
magnseigenda eru að minnka eftir að sífellt fleiri launþegar eru
orðnir beinir hluthafar í fyrirtækjum - og óbeinir í gegnum líf-
eyrissjóði sína.
Valdablokkirnar á íslandi geta auðvitað ekki verið allar í
samkeppni sín á milli í sömu atvinnugrein ef það ríkir tví- og
þríkeppni á flestum sviðum atvinnulífsins. Þær búa hins vegar
allar við samkeppni. Stórt fyrirtæki á Islandi er agnarsmátt á al-
þjóðlega mælistiku og býr við beina samkeppni, eða að
minnsta kosti hótun um samkeppni, frá erlendum risafyrir-
tækjum í sömu grein. SH
Tvíkeppni og fákeppni
Mikið hefur verið rætt um tvíkeppni, fákeppni og einokun
fyrirtækja á íslandi. Að markaðsöflin leitist sjálf við að
hafa aðeins tvö stór og ráðandi fyrirtæki á hveijum
markaði - í hverri atvinnugrein - og fyrir vikið skortí á sam-
keppni. Að það sé óþolandi hvað eigendur fyrirtækja keppist
við að sameina fyrirtæki og gera þau stærri.
Stöldrum við. Hvað er heimamarkaður þegar heimurinn er
orðinn eitt markaðssvæði? Ríkir á Islandi tvíkeppni á
mörkuðum eða alþjóðleg samkeppni? Er erlendum fyrir-
tækjum ekki í lófa lagið að stökkva inn á íslenskan markað telji
þau eftir einhveiju að slægjast?
Því verður ekki á móti mælt að hér ríkir ftjáls sam-
keppni og að ný fyrirtæki hafa ftjálsan aðgang að
nánast öllum mörkuðum á Islandi. Margir þessara
markaða eru hins vegar svo smáir að markaðsöflin
sjálf telja ekki rými á þeim fyrir fleiri en tvö til þijú stór
fyrirtæki eigi þau að geta gert allt í senn: Iifað af,
skilað hluthöfum sínum viðunandi ávöxtun, fært laun-
þegum vinnu og samkeppnishæf laun og neytendum
lágt verð í gegnum stórinnkaup og hagræðingu fyrir-
tækja.
Þegar allt kemur tíl alls gengur auðvitað allt bröltíð
í atvinnurekstri út á að fyrirtæki reyni að hámarka
sinn ágóða. Hins vegar er mikilvægt að leikreglurnar
séu þannig að það sé frjáls aðgangur allra að mörk-
uðum og frelsi til að stofna ný fyrirtæki tíl að keppa.
Engar hömlur. Það er heldur engin ný bóla að erfitt sé
fyrir ný fyrirtæki að koma inn á markað þar sem sterk
Þeir áhrifamestu fyrír fimm árum
Fijáls verslun valdi tíu áhrifamestu menn viðskiptalifsins
vorið 1998. Óhætt er að segja að fljótt skipist veður í lofti í
viðskiptalifinu. Miðað við valdablokkirnar núna eru hvorki
fleiri né færri en níu menn dottnir út af listanum okkar frá því
fyrir fimm árum. Sá eini sem kæmist á listann núna væri
Benedikt Sveinsson, stjórnarformaður Sjóvár-Almennra. Þeir
sem dottnir eru af listanum eru þeir Hörður Sigurgestsson,
Axel Gíslason, Geir Magnússon, Indriði Pálsson, Friðrik Páls-
son, Jón Ingvarsson, Benedikt Sveinsson (Islenskum sjávar-
afurðum), Sigurður Gísli Pálmason og Kjartan Gunnarsson. [E
Frjáls verslun velur 10 áhrifamestu menn
atvinnuli/sins. HördurSigurgestssonJor-
stjóri Eimskips, er að mati blaðsins ákrifa-
mesti einstakíingurinn í atvinnulífinu.
Áhrif i krafti fjármagns -ogþaðað vilja
hafa áhrif á gang mála - voru lögð til
grunávallar við gerð listans. Flestir á list-
anum tengjast þeim tveimur blokkum sem
hafá tekist á i viðskiptalífinu, einkum í
sjávarútvegi. Ekki er minnsti vafiáað völá
og áhrif i atvinnulífinu snúast núna um
kvótann og bankana!
FRÉTTASKÝRING: JON 0. HAUKSSON
Níu af tíu áhrifamestu mönnum viðskiptalífsins frá árinu 1998 eru
dottnir út af listanum miðað við þær blokkir sem núna eru í gangi.
39