Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Page 33

Frjáls verslun - 01.09.2003, Page 33
að fara í gegnum mikið breytingarferli, en uppstokkun á stjórn fylgja oft miklar breytingar. Ekki er hægt að segja að ég hafi sóst- eftir þessu stjórnar- formannsstarfi hjá Eimskipafélaginu, en Björgólfur Guð- mundsson bað mig um að ganga í það. Niðurstaðan varð sú, eftir að hafa rætt málið við eiginkonu mína, að ég tæki það að mér. Eimskipafélagið er feikilega mikið fyrirtæki með afar íjölbreytta starfsemi. Ef tekin eru öll dótturfélögin, þá er Eimskip með á þriðja þúsund manns í vinnu. Þannig að ég nálgast því starfið með ákveðinni auðmýkt." Magnús var inntur eftir því hvort hann hefði ekki einhver áhugamál og hvort tími væri til þess að sinna þeim. „Það má segja að ég sé dæmigerður vinnuþjarkur og hef því miður nánast engan tíma til þess að sinna áhugamálum mínum. Ég hef þó aðstöðu til þess, því við hjónin eijpim jörð á Mýrunum sem við fjárfestum í fyrir nokkrum árum. Þar höfum við komið okkur upp sumarbústað og ég fæ einstaka tækifæri til að sinna tómstundum mínum þar.“ Veslurbæingur Magnús er Vesturbæingur, fæddur í Reykjavík hinn 6. september 1946. Foreldrar hans eru Gunnar Magnússon skipstjóri og Kristín Valdimarsdóttir. Magnús ólst upp að Öldugötu 40 fyrstu ellefu árin, en fluttist síðan einn vetur á Sólvallagötuna. ,Árið 1958 fluttum við fiöl- skyldan út á Seltjarnarnes og þar átti ég heima allt þar til ég flutti að heiman. Eiginkona Magnúsar er Gunnhildur Gunnarsdóttur snyrtifræðingur. Þau eiga tvö börn; Aðalheiði sem fædd er 1969 og Gunnar Kristin sem er fæddur 1973. Magnús gekk í Melaskólann en þaðan lá leið hans í Haga- Magnús Gunnarsson, nýr stjórnarformaður Eimskipa- I gsins: „Ef tekin eru öil dótturfélögin, þá er Eimskip 1 með á þriðja þúsund manns í vinnu. Þannig að ég nálgast því starfið með ákveðinni auðmýkt."

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.