Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Side 39

Frjáls verslun - 01.09.2003, Side 39
HEIMUR ÚTNEFNIR FERÐAFRÖMUÐ ÁRSINS Galdrakarlinn Jón Heimur útnefiidi ferðafrömuð ársins í fyrsta sinn í hófi í Borgarleikhúsinu sem haldið var í tilefiii af 40 ára afinæli Iceland Review. Sá heitir Jón Jónsson en hann er hreint ekkert venjulegur Jón. Eftír Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafsson Islendingar eru þekktir að því að geta tekið til hendinni ef þarf og komið miklu í verk á skömmum tíma. Þó þetta sé almennt álit á þjóð- inni, bæði innanlands og utan, eru alltaf einhverjir sem vekja athygli fyrir það að koma svo miklu í verk að aðrir skilja það engan veginn og telja jafnvel að viðkomandi hafi yfir að ráða einhvers konar tíma- strekkjara. Sá sem Heimur útnefndi ferðafrömuð ársins í fyrsta sinn, er Jón Jónsson þjóðfræðingur og ferðaþjónustubóndi á Kirkjubóli við Steingrímsljörð á Ströndum. Hann er einmitt einn þeirra sem virðist koma meiru í verk en flestir. Galdrar? Jón rekur m.a. fyrirtækið Sögusmiðjuna sem einbeitir sér að tengingu ferðaþjónustu, fræða og menningarstofnana, er hugmyndasmiðurinn á bak við Galdrasýningu á Ströndum, rekur gistihús á Kirkju- bóli við Steingrímsljörð með konu sinni, stjórnar Upplýsingamiðstöð ferðamála á Hólmavík, setti upp og stjórnar Sauðfjársetri á Ströndum þar sem ferðafólki er kynntur sauð- fjárbúskapur Strandamanna og margt fleira. Það er ekki laust við að læðist að manni grunur um að hann njóti aðstoðar huldra heima við verk sín en sjálfur þvertekur Jón fyrir það og segist vera ósköp venjulegur en hins vegar hafa gaman af því að sinna ýmsum verkefnum. ,Ástæða þess að við hjónin fluttum norður á Strandir árið 2000 er fyrst og fremst sú að okkur leist ekki á það að fara að senda börnin okkar í skóla með yfir þúsund börnum í,“ segir Jón og kona hans tekur undir það. „Við bjuggum í Reykjavík og eigum fjögur börn. Eg er ættaður af Ströndum og við þekktum vel til á Hólmavík þar sem við vissum að væri gott umhverfi og góður skóli sem skiptir miklu. Það er líka mikilvægt að börnin alist upp við að hver einstak- lingur fái að njóta sín og skipti máli í samfélaginu. Það er stórkostlegt að hafa möguleika á að ala börn upp hérna og möguleikar til starfa eru óteljandi, þeir tak- markast bara af hugmyndaflugi viðkomandi.“ Viðtökur framar vonum Á meðan Jón var enn í þjóðfræðinámi í Háskóla Islands átti hann frum- kvæði að verkefni þar sem greind var söguleg sér- staða Strandasýslu og búin til stefna í ferðaþjónustu- málum samkvæmt henni. „Þetta var árið 1995 og galdrasýning á Ströndum var ein hugmyndin sem kom upp í þessari vinnu. Sýningin var svo opnuð árið 2000 eftir góðan undirbúning sem bæði var fræðilegur og fag- legur þar sem mikil vinna hafði verið lögð í að hugsa út hvernig hægt væri að ná sem best til ferðafólks. Einnig var lagt upp úr því hvernig verkefnið getur haft Jón Jónsson þjóðfræðingur og ferðaþjónustubóndi á Kirkjubóli við Steingrímsíjörð á Ströndum var út- nefndur fyrsti ferðafrömuður ársins hjá Heimi. 39

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.