Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 47
sumarhús Noregs. Rokke er bandarískur í hátt-
um sínum sem auðmaður, enda varð hann ríkur
vestanhafs.
I Noregi þekkja fáir þá sem skipa efstu sæti á
listanum yfir ríkustu menn landsins. Öllum
finnst hins vegar sem þeir þekki Rokke. Hann er
bæði elskaður og hataður. Raunar er athyglivert
að allir sem unnið hafa fyrir Rokke bera honum
vel söguna. Hann er vinsæll meðal þeirra sem
hafa eitthvað af honum að segja. En meðal fína
og ríka fólksins í Ósló er hann litinn hornauga.
Hann er ekki einn af þeim. Hann er ómenntaður
maður utan af landi.
Þó hafa ríkar konur fallið fyrir togarahásetanum. Frægast er
samband hans við hina íðilfögru Celenu Middelfart Hún er
erfingi milljarðaauðæfa með systrum sínum, og rekur heildsölu
með snyrti- og heilsuvörur. Hún er númer 146 á listanum yfir
ríkasta fólkið í Noregi.
Vantar smápeninga Þótt á ýmsu gangi í rekstri Rokkes þá er
hann enn vel ríkur. Lausafjárstaðan er erfiðust. Því hefur þótti
við hæfi að ritja upp fleyg orð Rokkes þegar hann bað um að fá
fimmtíu króna seðli skipt: „Eg á ekki smápeninga," sagði hann
og það þóttu orð að sönnu. Rokke átti bara stóra peninga.
Framtíð Rokkes er óljós og framtíðin er að litlu leyti á valdi
hans sjálfs. Næstu misseri ráða bankarnir ferðinni. Trygve
Hegnar, hinn litríki ritstjóri viðskiptablaðsins Kapital, segir að
bankarnir geti fellt Rokke hvenær sem er. Rokke skuldi hins
vegar svo mikið að bankarnir þori ekki að
leysa veldi hans upp.
Almennt er gengið út því sem visu að
Rokke verði að selja - eða öllu heldur: verði
látinn selja - umtalsverðan hluta eigna sinna.
Spurningin er: Hveiju heldur hann efdr?
Góði hirðirinn? Ef tekið væri tillit til óska
fólks uppi í Hammerfest eða úti á Lófót þá
héldi Rokke Norway Seafoods. Hann hefur
lagt umtalsverða peninga í að byggja upp
sjávarútvegsfyrirtæki í Norður-Noregi.
Hann hefur þar tekið við útgerðum og frystihúsum í þrotum,
byggt fyrirtækin upp og gert þau lífvænleg.
Trúnaðarmaður verkafólks í frystihúsi Rokkes í Melbu á
Lofoten er einn þeirra sem ver atvinnurekanda sinn. „Við
höfðum ekki trú á Rokke þegar hann kom hingað fyrst. Nú
vitum við að hann er okkar maður; enginn annar en hann hefði
haft dug og framsýni til að byggja þetta fyrirtæki upp,“ hefur
fréttastofan NTB eftir trúnaðarmanninum, Kai Ivan Guldherg.
Aðir segja að Rokke sé slakur atvinnurekandi. Katharine
Aspaas, fréttaskýrandi Aftenposten, segir í blaði sínu að góðir
vinnuveitendur séu ríkir og traustir í sessi. Rokke sé hins vegar
reikull í tjárfestmgum sínum og fyrirtæki hans fiða vegna tjár-
skorts og skuldsetningar.
I vetur kemur síðan í ljós hvort Rokke, svo reikull sem hann
er, fellur um koll eða hvort hann reynist sá góði hirðir sem
starfsmenn hans trúa á. BO
í norskum þjóðsögum
segir oft frá kolbítnum
Ásbirni Askeladden.
Þetta er bláeygur drengur
sem vex upp við lítil
afrek og er talinn ónytj-
ungur af öllum sem til
þekkja. En drengur fer út
í hinn stóra heim...
Meðat fjölbreyttra þjónustuþátta sem MP Fjárfestingarbanki
býður upp á er eignastýring fyrir einstakiinga og stærri aðiia,
þar sem mismunandi ávöxtunarleiðir eru í boði.
Sérfræðingar okkar leggja metnað sinn í að ná góðum árangri
í eignastýringu. Því höfum við kosið að þóknanir séu að mestu
árangurstengdar og tryggjum þannig að hagsmunir okkar og
viðskiptavina fari ávallt sem best saman.
Við leggjum ríka áherslu á trausta og persónulega
þjónustu og góða upplýsingagjöf. FJÁRF E ST ING ARBANKI
Hafðu samband við okkur í síma 540 3200.
MP Fjárfestingarbanki hf. Skipholti 50d Sími 540 3200 Fax 540 3201 mottaka@mp.is www.mp.is
47