Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Page 51

Frjáls verslun - 01.09.2003, Page 51
áfengis daglega, fái sér vín með matnum og bjór með sjón- varpinu og ef þetta er í efri mörkum þess sem mælt er með, hefur það áhrif á minnið. Ef svefninn er ekki í lagi, fólk sefur að jafnaði minna en líkaminn þarfnast, hefur það sömuleiðis áhrif á minnið sem verður ekki eins gott. Streitan sem fylgir flóknum lífsstíl og samskiptum hefur einnig sitt að segja og síðast en ekki síst hefur lyfjataka áhrif á minnið. Það er orðið allt of algengt að fólk taki lyf við öllu mögulegu sem ef til vill væri betra að bregðast við með breytingu á lífsstíl og þessi lyf hafa oft víðtæk áhrif.“ Minnisleysi um og eftir sjötugt Jón segir nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því hvað það er sem hefur áhrif á ein- beitingu fólks ef minnið er farið að bregðast og reyna að bregðast við því. Sjá hvort ekki er hægt að hægja á sér og skipuleggja daginn betur. „Það er misjafnt hvenær fólk fer að gleyma beinlínis vegna aldurs en algengt er að á sjötugsaldri fari milt minnisleysi að gera vart við sig,“ segir Jón. „Þó eru sumir sem hafa stálminni alveg til níræðs þannig að það er engin regla í þessu. Hitt er annað, að nákvæmlega eins og harði diskurinn í tölvunum getur fyllst, hefur minnið ákveðinn mettunarþröskuld og það er ekki endalaust hægt að troða í það.“ Hvað varðar lyf við minnisleysi vill Jón ekki mæla með þeim og segir lyf sem gefin eru t.d. alzheimersjúklingum ekki henta mjög vel einstaklingum sem ekkert er að annað en létt minnisleysi vegna annarra orsaka en sjúkdóms. „Þessi lyf hafa öll aukaverkanir og sumar óþægilegar og ég tel miklu betra að breyta einfaldlega um lífsstíl og sjá hvort það verður ekki til þess að minnið batnar." Hvernig munum við? Minni byggist að miklu leyti á tengslum. Maður sér manneskju og þekkir hana í sjón. Það sem heilinn þekkir er fasið, klæðaburðurinn og annað sem tengir saman minnisbúta. Það kannast allir við að hafa séð einhvern sem er kunnugur, meira að segja vel kunn- ugur, en geta ekki með neinu móti komið viðkomandi fynr sig. Aðeins vegna þess að manneskjan er á röngum stað, í röngum fötum (sé hún t.d. vön að vera í einkennisklæðnaði) eða tengslin á ein- hvern hátt röng. í hvert sinn sem við verðum STUNDUM ÞARF HEILINN að vinna á yfirhraða, bara til að fylgjast með því sem nauðsynlegt er. Áreitið er stöðugt; frá ljósvakamiðlum, umferðinni, tölvunni, börnunum, ræktinni, vinnufélögunum... aldrei er hægt að slaka á og leyfa sér að gleyma einhveiju.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.