Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Side 76

Frjáls verslun - 01.09.2003, Side 76
Kristján Pálsson, framkvæmdastjóri Jóna Transport. Jónar Transport Flutt með hraði Jónar Transport bjóða upp á alhliða flutninga, hvert sem er í heiminum. Jónar Transport hafa á síðustu 25 árum markað spor í flutningsmiðlun til og frá íslandi með því að bjóða upp á heildarþjónustu í fraktflutningum, hvort sem um er að ræða sjófrakt, flugfrakt eða hraðsendingar,“ segir Kristján Pálsson, framkvæmdastjóri Jóna Transport. „I þessu felst að fyrirtækið sér um að sækja eða flytja vörur heim að dyrum birgja nánast hvaðan sem er og hvert sem er í heiminum, koma þeim í skip eða flugvél eftír þörfum og sér um alla tilheyrandi skjalameðhöndlun erlendis og hérlendis, ásamt þeirri vöruhúsa- og akstursþjónustu sem til þarf.“ Umboðsmannakerfi Jóna Transport spannar veröldina víða. I Bandaríkjunum hafa Jónar verið í áralöngu samstarfi við Bax Global sem er einn öflugasti flutningsmiðlari í flugfrakt þarlendis. Einnig vinna Jónar með staðbundnum aðilum í New York og Norfolk varðandi skipa- og flugfrakt.. Upphaf Jóna nafnsins má rekja til Hafnarljarðar, en fyrirtækin Jónar og Flutningsmiðlunin voru bæði stofnuð um 1980. Flutningsmiðlunin sérhæfði sig í forflutningum til hafna á meginlandi Evrópu, flugfrakt og hraðflutningum en Jónar í skipaafgreiðslu og sjófrakt. Árið 1995 sameinuðust þessi 2 fyrirtæki í Flutnings- miðlunina Jóna, sem síðan sameinaðist BM Flutningum árið 2000 í Jóna Transport. Mikil reynsla í flutningsmiðlun „Fiestir samstarfsaðilar Jóna Transport erlendis hafa starfað með okkur í 15-20 ár og þekkja þarfir íslenska markaðarins mjög vel,“ segir Kristján sem tók við starfi framkvæmdastjóri Jóna Transport sumarið 2002 eftír að hafa starfað í Bretlandi í sjö ár sem framkvæmdastjóri skrifstofu Samskipa. „Starfsfólk okkar hefur mikla reynslu í flutningsmiðlun og tengdri þjónustu og fagmennska einkennir öll þeirra störf. Jónar hafa ávallt lagt megináherslu á persónulega þjónustu við viðskiptavini sína.“ Kristján segir það hafa komið sér verulega á óvart hversu víðtæka reynslu starfsfólk Jóna hafi í flutningsmiðlun. „Hér hafa líka allir gaman að því sem þeir eru að gera og leggja sig jafnframt 100% Jiram í þau verkefni sem fyrir liggja.“ Jónar Transport hafa verið leiðandi í flugfrakt frá Bandaríkjunum s.l 15 ár í samstarfi við Bax Global sem eru með 250 skrifstofur í öllum fylkjum landsins. Hægt er að rekja feril allra flugsendinga sem fara í gegnum Bax Global á slóðinni www.baxglobal.com. Þar getur viðskiptavinurinn fylgt sendingu sinni nákvæmlega eftír og séð stöðu hennar á hveijum tíma. Jónar bjóða upp á viku til hálfs- mánaðarlegar siglingar tíl og frá austur- og vesturströnd Bandaríkjanna. Jónar bjóða upp á forflutninga til hafnar frá öllum fylkjum í gegnum Norfolk sem er aðalútskipunar- höfnin á austurströndinni. 3H í BANDARÍKJUNUM hafa Jónar verið í áralöngu samstarfi við Bax Global sem er einn öflugasti flutningsmiðlari í flugfrakt þarlendis. 76

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.