Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Page 86

Frjáls verslun - 01.09.2003, Page 86
Roberto Bava og matreiðslumeistarinn Sergio Zanetti í heimsókn hér á landi nýlega. Myndir: Geir Ólafsson Piedmont - best varðveitta leyndarmál ítalíu Italía er án efa eitt helsta vlnland ver- aldarinnar. Ítalía er margbrotið vín- land og flókið. Á Ítalíu er framleitt óhemjumagn af lélegu víni. En þar eru einnig framleiddar sumar af stórkost- legustu víntegundum heimsins. Italía hefur verið sameinað ríki frá 1870. Ohætt er að segja að enn sé tölu- verður munur á hinum ýmsu hér- uðum Ítalíu og það er griðarlegur munur á Norður- og Suður-Italíu. Þess vegna er Ítalía í mínum huga áhugaverðasta vínland heims- ins. Á undanförnum árum hefur orðið byltingarkennd þróun í ítalskri víngerð. Þá er hinn mikli munur sem er á víni frá hinum ýmsu héruðum áhugaverður og spennandi. Áhuga- verðustu vínin koma frá Toskana og Piedmont. Þá eru farin að koma afar áhugaverð vín frá Púglíu og Sikiley. Þá er rétt að benda á að frá Friuli koma ljómandi hvítvín. Það hérað sem í mínum huga er hvað mest spennandi um þessar mundir er Piedmont. Piedmont Héraðið Piedmont er í norðaustur hluta Ítalíu, við frönsku landamærin í skjóli Alpanna. Héraðið er Mekka sæl- kera, enda er maturinn einstaklega ljúffengur, kraftmikill, ein- faldur en þó spennandi. Héraðið er þekkt íýrir hvíta jarðsveppi eða trufflur, sem gefa frá sér ljúffengt og sérstakt bragð. Villibráð, innmatur, risotto hrís- grjón sem eru ræktuð í héraðinu ein- kenna matargerð héraðsins. í Pied- mont er ræktað grænmeti í háum gæðaflokki, ávextír og þar eru gerðir úrvalsostar. Rauðvínin frá Piedmont eru matar- mikil og kröftug. Á árum áður var sagt um þessi öflugu vín að þau væru ‘il vino che e pane’ (vínið sem er brauð). Þekktasta og ástsælasta vín Piedmont er Barolo. Þetta stóra vín er pressað úr Nibbioloþrúgunni. Barolovínið er firnakröftugt, þurrt og þarf nokkurn tíma tíl að þroskast og mýkjast. Barolo er margbrotíð vín og áfengt, rúm 13%. Það er frábært matarvín, gott kjötvín og frábært með villibráð. Annað yndislegt vín frá Piedmont er Barbarsco, - sérstakt vín en þægi- legt, ekki ósvipað Barolo, en mýkra og ögn léttara. Þekktasta vín héraðsins er hins vegar vín sem Islendingar þekkja vel, freyðivínið Astí Spumante, sem framleitt er úr Moscato þrúg- unni. Á síðari árum hafa komið nokkrar áhugaverðar hvítvins- tegundir frá Piedmont en það er samt sem áður rauðvínið mikilfenglega sem er áhugaverðast. / / A Italíu er framleitt óhemjumagn af lélegu víni. En þar eru einnig framleiddar sumar af stórkostleg- ustu víntegundum heimsins. Þær áhugaverðustu koma frá Toskana og Piedmont Eftír Sigmar B. Hauksson 86

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.