Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Side 90

Frjáls verslun - 01.09.2003, Side 90
Halldóra Katla Guðmundsdóttir, markaðsstjóri hjá Lýsingu: „Eg fór á Dale Carnegie námskeið sl. vor eftir að ein vinkona min var búin að sannfæra mig um að þetta væri frábært námskeið, og ég varð ekki fyrir vonbrigðum." Mynd: Geir Ólafsson Halldóra Katla Guðmundsdótlir, markaðsstjóri hjá Lýsingu Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Halldóra Katla Guðmundsdóttir hefur starfað í þrjú ár sem markaðs- stjóri hjá Ijármögnunariyrirtækinu Lýsingu en vann þar á undan hjá hugbún- aðaríyrirtækinu HSC. „Lýsing er leiðandi í ijármögnun atvinnutækja á Islandi og ört stækkandi í fjármögnum einkabíla,“ segir Halldóra. „Fyrirtækið er skilgreint sem þjónustu- íýrirtæki sem leggur mikið upp úr því að veita framúrskarandi þjónustu og hafa þjónustukannanir meðal viðskiptavina okkar komið vel út. Þessa dagana erum við að innleiða þjónustustefnu í iýrir- tækið en hún mun endurspegla þarfir og væntingar viðskiptavina okkar sem áttu stóran þátt í mótun stefnunnar ásamt samstarfsaðilum Lýsingar, sem eru véla- og bílaumboðin.“ Starf markaðsstjórans er annasamt en Halldóra segir starfsanda mjög góðan hjá Lýsingu og vel hugsað um að starfsfólki líði vel. „Þetta er alveg frábær vinnustaður og gott að vera hér,“ segir hún. ,Áður en ég hóf störf hjá Lýsingu, vann ég við bók- hald og markaðstengd störf hjá HSC (Hospitality Solution Center). Eg hef einnig unnið við nokkrar útgáfur af Tri- vial Pursuit við að þýða og semja spurn- ingar en það er gríðarlega mikil vinna. Sumarfríið í fyrra fór t.d. að mestu í þessa vinnu, en ég bætti mér það upp núna í sumar og átti langt og gott sumarfrí!" Halldóra útskrifaðist með B.Sc. gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniháskóla íslands árið 2000 og segir hún námið hafa verið mjög hagnýtt og skemmtilegt. „Síðan stefni ég á meistaranám í mannauðsstjórnun næsta haust. Þetta fag hefur lengi heillað mig og ég hlakka til að seijast aftur á skólabekk. Eg fór á Dale Carnegie námskeið sl. vor eftir að ein vinkona mín var búin að sannfæra mig um að þetta væri frábært námskeið, og ég varð ekki týrir vonbrigð- um. Það er að nýtast mér rosalega vel og núna er ég á öðru 12 vikna námskeiði, en í þetta skiptið sem aðstoðarmaður. Það er mjög skemmtilegt og gefandi að vera í aðstoðarmannshlutverkinu og frábært að iylgjast með árangri þátttakendanna." Helsta líkamsrækt Halldóru er að nota Orbitrek tæki sem hún keypti fýrir nokkrum árum í Sjónvarpsmarkaðnum. „Ég fer á Orbitrekið nánast daglega og horfi á sjónvarpið á meðan,“ segir hún. „Þar iýrir utan fer ég í skvass einu sinni í viku með einni sem vinnur með mér. Ég hef líka mjög gaman af því að fara út að hjóla með 8 ára dóttur minni og förum þá oft niður að Tjörn og hjólum um mið- bæinn, en við búum í Vesturbænum." Af áhugamálum segir Halldóra að innanhússhönnun sé ofarlega á blaði. „Ég skráði mig í skóla í Englandi í fyrra, og er í fjarnámi í innanhússhönnun. En ég lít meira á þetta sem hobbý og stefni ekki endilega á það að útskrifast þaðan, en mér finnst rosalega gaman að skoða bækur og blöð í faginu og fá góðar hug- myndir. Síðan er ég með frábæra hug- mynd að vef tengdum innanhússhönnun sem ég er búin að hanna, en ég þarf bara að finna tíma til að vinna í honum. Svo er ég alltaf með góða bók á nátt- borðinu, en núna er ég að klára Alkemist- ann. Frábær bók!“S!] 90

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.