Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2003, Page 84

Frjáls verslun - 01.10.2003, Page 84
o/rni Gallerý Kjöt: Góðgæti um Ofarlega á Grensásvegi er verslunarsam- stæða sem búin er að vera þar allt frá því hverfið fór að byggjast upp. Undan- farin ár hefur sívaxandi fjöldi fólks alls staðar að komið í þennan kjarna - til að kaupa kjöt. Gourmet kjötverslunin Gallerý Kjöt, sem rekin er af Þóri Omari Grétarssyni og Árdísi Sigmundsdóttur, hefur unnið sér sess í huga þeirra sem kunna að meta gott kjöt og prófa nýja hluti af og til. „Við erum með margar nýjungar hér og af þeim má nefna spægipylsuna okkar góðu, en við framleiðum spægipylsu úr hreindýrakjöti auk þess sem við seljum hrein- dýrakjöt, sem unnið er á ýmsa vegu, og hreindýrapate," segir framkvæmdastjórinn sem gjarnan vill láta kalla sig Ómar. „Hreindýrakjötið er íslenskt og ég veiði talsvert af því sjálfur því ég vil helst íýlgja kjötinu alla leið og fúllvissa mig um að meðhöndlunin sé fýrsta flokks, allt frá þvf að dýrið er veitt.“ Jólagjafirnar Ómar segir misjafnt hvenær fólk fer að hugsa um jólamatinn. „Hingað hefur komið fólk í maí til að panta og skipuleggja jólaveislur, en í byijun september förum við að sjá talsvert af fólki sem er að panta jólamat. Fyrirtæki og stofnanir, sem ætla að gefa körfur með mat, þurfa að vera tímanlega á ferð og ekki síst ef pöntunin er stór eða á að fara til útlanda. Það er talsvert algengt að íslenskt kjöt sé sent út, bæði til ættingja og svo sem jólagjöf til viðskiptavina erlendis. Við höfum látið útbúa fyrir okkur fallega kassa undir kjötið en í kassanum eru að jafnaði spægipylsa, skinka, hreindýrapate, grafið lamb og grafið naut. Með þessu eru svo sósurnar okkar, beijasósa og koníakssósa og punkturinn yfir i-ið er súkkulaði frá Maxim's í París og ítalskt sérinnflutt kaffi. Vilji viðskiptavinurinn að vín sé með í kassanum kemur hann með það og við pökkum því með en við höfum ekki vínsöluleyfi hér.“ Margs konar Skinka Skinka er ekki bara skinka, eins og vel kemur í ljós þegar rætt er við Ómar sem hefur ástríðuþrunginn áhuga á kjöti og verkun þess. „Við erum með fjórar gerðir af skinku í búðinni," segir hann. „Það er Black forrest eða svartaskógarskinka. Hún er með sterku viðarbragði og gríðarlega góð. Svo er það Applewood sem er með mildu eplabragði, Hiccory sem er með reykbragði og Pastrami sem er sterkkrydduð og þykir alveg afbragð." Fyrir utan íslenskt kjöt, sem er í aðalhlutverki í Gallerý Kjöt, er hægt að fá fasana og dádýrakjöt, forsoðnar kalkúnabringur og fleira gott. Unnið frá hjartanu Það er eins með kjötvinnslu og matreiðslu að árangurinn fer eftír því hvernig á málum er haldið. „Galdurinn er að vinna og verka kjötið frá hjartanu," segir Ómar. „Það skiptir engu hvað þú reynir mikið, ef þetta kemur ekki frá hjartanu vantar eitthvað, einhveija fýllingu. Hér eru fagmenn að verki, fólk sem nýtur þess að búa til góðan mat og það einfaldlega skilar sér í góðri vöru. Héðan fer ekkert kjöt út íyrr en að minnsta kosti þremur vikum eftir að það kemur inn og það merkir einfaldlega að við verðum að vera vakandi yfir því allan tímann. Okkar markmið er að hingað getí komið fólk og keypt heila veislu, forrétt, aðalrétt og eftírrétt og farið heim, fullvisst um að hráefnið sé fýrsta flokks og að ekkert fari úrskeiðis þess vegna.“ JÓI í bÚStað Hvað ætlar svo Ómar að hafa í jólamatinn? „Ég á von á því að um kl. 7 á aðfangadag verðum við, ég og Árdís eiginkona min, komin upp í sumarbústað þar sem við ætlum að dvelja um hátíðina. Að líkindum verðum við með dádýrakjöt eða andabringur í matinn en það er ekki fullljóst enn...“[Jj Fyrir þá sem vilja harða pakka um jólin er valið einfalt. Fullur kassi af gómsætu kjöti, kaffi, súkkulaði, ostum og öðru meðlæti frá Gallerý Kjöti er bæði óvenjuleg og góð gjöf. JSallerý Kjöt er fallég verslun. Her eru Öffiar Grétarsson o§ Ardis Sigmundsdóttir alla daga að vinna frábært kjöt fyrir viðskiptavini sína sem koma alls staðar að til að kaupa það.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.