Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 81
MARKAÐSMAL
I rriffifc (
Skúli J. Björnsson, framkvæmdastjóri og eigandi Sportis,
ásamt konu sinni, Önnu S. Garðarsdóttur.
Mynd: Geir Ólafsson
Með rætur í
útivistinni
Nærfatnaður úr nýsjálenskri ull, flísfatnaður og
yfirhafiiir. Cintamani er íslenskur útivistarfatn-
aður sem framleiddur er í Iitháen og Hong Kong.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Sportis er 20 ára gamalt fyrirtæki sem hefur
sérhæft sig í innflutningi á merkjavöru í
barna- og sportfatnaði, íþróttatækjum og
-tólum og öðru því tengdu. Vaxandi hluti af fyrir-
tækinu er framleiðsla á útivistarfatnaði undir
íslenska vörumerkinu Cintamani. Cintamani er úti-
vistarfatnaður sem er hannaður í samvinnu við úti-
vistarfólk og neytendur hér á landi og framleiddur í verk-
smiðjum erlendis, bæði í Litháen og þó fyrst og fremst í
Hong Kong. Sportis er í eigu Skúla J. Björnssonar fram-
kvæmdastjóra og konu hans, Önnu S. Garðarsdóttur.
Stenst veðrið „Cintamani á rætur sínar í útivistargeir-
anum. Þetta er sport- og útivistarfatnaður sem stenst þær
kröfur sem íslenskt veðurfar gerir til svona fatnaðar, ítrustu
kröfur um þægindi og eiginleika. Þetta er nærfatnaður, flís-
fatnaður af mörgum gerðum og úlpur og yfirhafnir sem
standast íslenskt veðurfar. Svo framleiðum við barnafatnað
og fylgihluti, húfur og töskur. Flíkurnar eru framleiddar úti.
Við höfum valið verksmiðjur sem hafa staðist ítrustu
skoðun og samið við þær um framleiðsluna. Svo höfum við
verið sjálf í markaðs- og sölustarfi," segir Skúli.
Island er aðalmarkaður Cintamani, að minnsta kosti enn
sem komið er, og segir Skúli að Islendingar séu kröfuharðir
og meðvitaðir neytendur. Konurnar séu opnar fyrir frísk-
legum og fallegum litum en karlpeningurinn sé frekar
íhaldsamur og mun íhaldssamari en kynbræður þeirra í
Mið-Evrópu. Það sé aðalmunurinn á neytendum þessara
landa. Skúli segir erfitt að skilgreina hve markaðshlut-
deildin sé stór hér á landi, í merkjavörunni sé fyrirtækið
klárlega með góða markaðshlutdeild. I útivistar- og sport-
geiranum sé Cintamani líka að gera það gott. Tékkland er
fyrsti erlendi markaðurinn sem Cintamani hefur farið inn á,
hefur verið þar í tvö ár og á þeim tíma hefur aukningin verið
úr 200 flíkum upp í 10 þúsund fyrir næsta tímabil.
í samstarfi við Toyota í Noreyi „Varan líkar rosalega vel
enda höfðar hún vel til ungs fólks. Þetta er tískulegur og
smart útivistarfatnaður fyrir kröfuhart fólk á öllum aldri
sem vill vera ungt í anda. Við erum með góð efni og liti sem
falla í kramið og eru í tísku. Norski markaðurinn fær fyrstu
flíkurnar í haust og ástralski markaðurinn fær fyrstu
sendinguna sumarið 2005. Við erum svo með þreifingar
víðar,“ segir Skúli.
Samkeppnin er hörð, hvort sem er hér á landi eða á
erlendum mörkuðum þar sem erfitt getur reynst að komast
að. I Noregi hefur Cintamani verið með markaðssetningu í
samstarfi við Arctic Trucks, t.d. í ísklifurklúbbum og í
sjónvarpsþáttum um bíla. Fyrirhugað er að kynna fatnaðinn
í Svíþjóð og Finnlandi. Starfsmenn Sportis eru sjö.
Cintamani var upphaflega stofnað af Jan Davidson í sam-
vinnu við Foldu á Akureyri og voru fyrstu fötin hönnuð á
íslensku Everestfarana. Skúli segir
að það sé líklega eina vörumerkið í
heiminum sem hafi farið á báða
pólana og sjö hæstu tinda heims en
það gerðist í samvinnu við Harald
Örn Ólafsson pólfara. Sportis kom
inn í Cintamani-samstarfið árið
1999 og keypti það árið 2002.33
Nýtískulegur og smart
útivistarfatnaður fyrir
kröíúhart fólk á öllum
aldri. Cintamani framleiðir
líka nærfót úr nýsjálenskri
ull, úlpur og flísfatnað.
81