Morgunn


Morgunn - 01.01.1978, Page 15

Morgunn - 01.01.1978, Page 15
ALDAHVORF 13 veldlega og sál jarðneska mannsins skynjar hið takmarkaða. Munurinn á sál jarðneska mannsins og alheimssálinni er því sá, að núverandi sálarþroski jarðneska mannsins leyfir að- eins skynjun hins tímabundna, en sál eða vitund alheimsins skynjar eilífðina. Jarðneski maðurinn fær aðeins skynjað hið staðbundna, en alheimssálin skynjar heildina. Þar af leiðir að venjulegur óvígður maður hefur engan aðgang að skynjun utan tíma og rúms. Hann skynjar því ekki eigin ódauðleika eða eilíft lif. Honum er ekki gefið að sjá í gegnum blekkingar umhverfisins, svo að hann skynji sinn eigin „fasta punkt“ í sjálfi guðdómsins. Þetta er munurinn á hinum óvígða manni og hinni alheimsvígðu veru eða heimslausnara, sem skynjar í samræmi við alheiminn og finnur því að hann og faðirinn eru eitt og hann sjálfur „vegurinn, sannleikurinn og lífið“. VI. Sannur kristíndómur verður ekki framkvæmdur við núver- andi stjórnskipulag. Samkvæmt þessari greiningu verður það i hæsta máta skilj- anlegt og þar með afsakanlegt, að fulltrúar hinna geistlegu yfirvalda eða prestarnir hafa orðið að framkva'ma og túlka hina sönnu kristilegu breytni opinberaða með heimslausnar- anum á þann ófullkomna hátt, sem raun ber vitni. Þeir eru ekki ennþá gæddir hinni háu þekkingu, sem birtist i fram- komu heimslausnarans. A meðan geistlegum og borgaralegum yfirvöldum einhvers ríkis jafnt sem almenningi er ennþá varnað þess að skynja sál alheimsins og hljóta því óhjákvæmi- lega að vera á langtum lægra þróunarstigi að því er tekur til mannúðar og bróðurkærleika en því, sem heimslausnarinn birti með framkomu sinni, er fullkominn kristindómur óhugs- andi í framkvæmd innan þess sama ríkis. Réttarfarið getur ekki gefið öllum „glæpamönnum“ upp sakir með þvi fororði

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.