Morgunn - 01.01.1978, Síða 16
14
MORGUNN
að fyrirgefa þeim, þvi að þeir viti ekki hvað þeir gjöra. Yrði
daglegt líf annarra manna þá ekki eins og hættulegur frum-
skógur? — Ríkið gæti ekki heldur gefið alla hermennsku
upp á bátinn með þeim rökum að sá sem með sverði vegur
skuli fyrir sverði falla á meðan ennþá finnast tilhneigingar
til rana og glæpa, sem samfélagið verður að verjast. Ekki er
heldur hægt að krefjast þess, að geistleg yfirvöld breyti ná-
kvæmlega í anda Nazareans, á meðan þau eru ennþá venju-
legir, ófullkomnir menn. Greiningar viðvíkjandi afstöðu sam-
félagsins til æðstu hugsjóna kristindómsins eiga því ekki á
nokkurn hátt að vera ásökun á hendur prestum, lögfræðing-
um eða herforingjum. Þær eru aðeins greining á afstöðu
hinna kristnu ríkja til æðstu hugsjóna kristindómsins. Þar
sem því verður ekki á móti mælt, að þessar hugsjónir eru
þungamiðja allrar mannúðar og menningar, að ekki sé minnzt
á að raunhæf uppfylling þeirra er óhjákvæmilegt skilyrði þess
að skynja lausn ráðgátu eigin lífs og öðlast þar af leiðandi
kosmiska vitund eða samband við alheimssálina eða guðdóm-
inn, sem heimslausnarinn var gæddur, og er þvi takmark
allra einstaklinga, þá er nauðsynlegt að gera sér ástandið ljóst.
Og ástandið er nákvæmlega það sem það hlýtur að vera eins
og sakir standa. Við höfurn svipazt um á nokkrum sviðum, þar
sem verurnar geta ekki ennþá uppfyllt hinar kristnu hug-
sjónir sökum vanþróunar. Þar sem uppfylling þessara hug-
sjóna er óhjákvæmilegt skilyrði fyrir samræmi eða friði, hlýt-
ur ósamræmi eða strið að ríkja þar sem þær eru ekki upp-
fylltar. Ef ekki væri svo, þá væru kenningar vígðra meistara
eða leiðtoga mannkynsins ekki annað en blekking. Við höf-
um séð, að hin kristnu samfélög verða ennþá að nota sverð,
fallbyssur og sprengjur sér til bjargar sökum drópgjarnrar
eigingirni, fjandskapar eða kæruleysis gagnvart náunganum.
Hvað lætur þessi hugsunarháttur eftir sig? — Dómsdag, ragna-
rök, limlestingar, dauðahryglu, grát og gnistran tanna, heims-
menningu í rústum, andlega jafnt sem efnislega. Hver ber
ábyrgð á öllu þessu? — Hverjum er þessi óskaplega eymd að
kenna?