Morgunn


Morgunn - 01.01.1978, Page 20

Morgunn - 01.01.1978, Page 20
18 MORGUNN lágskynjun eða tima- og rúmbundinni skynjun er bluturinn auðvitað ekki til utan þess rúms og tíma, sem nær frá upp- hafi hans til endaloka, en fyrir liáskynjun eða eilifðarskynjun er hluturinn eilífur. Það er rétt, að hann er ekki til innan rúms og tima og þvi óháður máli og vog, en það sannar ekki að það „eitthvað“ sem var hluturinn sé nú orðið að alls engu. „Eitthvað“ getur nefnilega ekki fremur orðið að „engu“ en „eitthvað“ getur myndazt af „engu“. Sérhver efnislegur hlut- ur, það er að segja sérhver „skapaður" hlutur, á sér þvi „há- sálræna“ eða kosmiska fortíð og hlýtur samsvarandi hásál- ræna eða kosmiska framtíð. Þar sem hluturinn er ekki bund- inn rúmi og tima í þessari fortíð og framtíð og er því óháður máli og vog, er ekki unnt að greina hann á neinn annan hátt en þennan: „eitthvað sem er“. Þar sem þetta „eitthvað" var til áður en það varð efnislegur hlutur og heldur áfram að vera til eftir að það hefur verið efnislegur hlutur, hefur það einnig verið til meðan það var efnislegur hlutur. T hinu „há- sálræna" ástandi sínu er það því greinilega eilift að eðli. IX. Óendanleikinn í rúmi og tíma býr í sérhverri takmörkun. Svo sem fyrr er að vikið, býr eilífðin og þar með óendan- leikinn í sérhverjum sköpuðum hlut, hversu smár sem hann er. Ef við tökum örsmáan hlut, t. d. baun, getum við skipt honum i tvo hluta, og hvorum hluta aftur i tvo helminga og þannig áfram. Við fáum aldrei svo lítinn hluta, að honum verði ekki stöðugt skipt, þó að við verðum vitaskuld vegna smæðar hlutanna að gefast upp við að skipta þeim með nokkru efnislegu tæki. En það sýnir aðeins efnislegan van- mátt okkar, en ekki hitt að hlutnum verði ekki skipt í sjálfu sér. Fyrir hásálrænni eða kosmiskri skynjun verður hluturinn aldrei svo lítill að ekki megi skipta honum í tvennt, og þess vegna birtist okkur hér eilifðin sjálf í formi litlu barmarinnar. Á sama hátt getum við greint aldur hennar. Ef hún er til að

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.