Morgunn


Morgunn - 01.01.1978, Page 22

Morgunn - 01.01.1978, Page 22
20 MORGUNN vera? — Það er ekkert rúm, enginn tími, ekkert efni, engin lögun, engir litir, heldur aðeins tilfinning greiningar eða skynjunar eilífðarinnar. Það „eitthvað“ sem skynjar er jivi „hið lifandi eitthvað“ í verunni eða það, er við táknum sem „sjálfið“. Og þar sem það er hið eina sem eftir er, þegar bönd rúms og tíma hins „skapaða“ hlutar hafa verið leyst upp, og í ljós kemur að hluturinn er gæddur eilífðareðli, getur sú „eilifð“ aðeins verið lífveran sjálf. Engin önnur eilífð er til og getur ekki verið til. Þetta merkir það, að með hásálrænni skynjun skynjar lífveran að hún er sama og eilífðin. Eilífðin er þvi ekki röð tíma- og rúmbundinna hugtaka, heldur sjálf- ið, „hið lifandi“ eða „lífið“ í sérhverri lífveru. Þannig er hinn skynjaði hlutur orðinn tengdur eilífðinni og eilifðin tengd sjálfinu. Þar með er lífveran orðin eitt með kosmos eða al- heiminum. Dropinn hefur sameinazt hafinu. Guðssonurinn hefur sameinazt föður sínum. Hér birtist okkur hin hásál- ræna uppbygging, sem liggur í orðum heimslausnarans: „Ég og jaSirinn erum eitt“. Það er þessi sameining við alheiminn, kosmos eða föðurinn, sem er takmark allra lifandi vera hér á hinu jarðneska eða lágsálræna tilverusvæði. Hér með er lífs- gátan leyst, ódauðleikinn sannaður þeim, sem gæddir eru nægum hásálrænum gáfum til að skilja sönnunina. Hér er hámark lífsskynjunarinnar. Æðra skynjanaform er ekki til. Ef lengra er haldið hefur það í för með sér að dropinn verður viðskila við hafið, glataði sonurinn villist frá föður sínum og Adam og Eva hverfa inn í myrkrið, hurt frá „lífsins tré“. XI. Án liins hásálræna skynjanaforms yrði lífið eilíf ráðgáta. Án hásálrænnar eða kosmiskrar skynjunar gæti fyrrnefnt takmark og skynjun aldrei fullkomnast. Þess vegna eru allir menn á jörSinni á firaÖri eiS til þessa skynjanaforms. Þar sem ég get ekki hér gert nánari grein fyrir skynjunarhæfni líf- verunnar, verð ég að visa til aðalverks míns „Bókar lífsins",

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.