Morgunn - 01.01.1978, Blaðsíða 51
SKÝRSLA . . .
49
skothríð var beint í gegnum kristalsskálina með vatninu.
Ahrif geislanna fann ég einnig greinilega og er ég þó manna
ónæmastur. En ég hafði nú fengið að degi til rækilega undir-
strikaða þá reynslu mína af framliðnum læknum, sem komu
til mín um nætur og helltu yfir mig geislum.
En hvað segir þá eðlisfræðin um þá geislun sem svo sann-
ailega átti sér þarna stað. Menn bæði sáu geislana og fundu
áhrif þeirra og skyggna konan tók einmitt svo til orða, að
geislarnir væru miklu sterkari eftir að þeir komu í gegnum
kristalsskálina með vatninu, hún sá geislana þá miklu betur.
Þetta þýðir á máli eðlisfræðinnar að öldulengd geislanna er
meiri en áður, þeir sjást betur þar afleiðandi og sýnast vera
sterkari. Greinilegt er að geislarnir áttu erfiðara með að brjóta
sér leið eftir að kristalsskálin hafði verið sett í braut þeirra
sem hindrun. Líkamleg áhrif þeirra verða þá greinileg og
jafnvel næmir en óskyggnir menn sjá þá með berum augum.
Nú spyr ég, hvað er eðlisfræði ef þessi geislaskothríð er ekki
eðlisfræðilegt rannsóknarefni, hvers eðlis er þessi geislun og
hvaðan kemur hún?
Burt séð frá því, hvaðan geislarnir koma, þá verður ekki
komist hjá því að álykta, að geislarnir lúti þekktum lögmál-
Uffl eðlisfræðinnar. Kristall og vatn hafa þau áhrif að tíðni
þeirra lækkar, þeir hægja á sér eins og neindir er þær fara
1 gegnum vatn og tapa væntanlega orku yfir í kristalinn og
vatnið. Að lokum stöðvast framrás geislanna er þeir endur-
kastast af vegg herbergisins að einhverju leyti. Það sem þarna
gerðist var það, að framliðnir menn höfðu skotið raunvís-
md&legum geislum út til okkar — út i efnisheiminn.
Ég vil aðeins nefna eitt lítið dæmi til viðbótar. Fyrir nokkru
fór ég á ný til lækningamiðils, en hann hafði ég ekki séð
áður. Miðillinn vísar mér til sætis og segir eftir litla stund:
Það er kominn til þín enskur læknir og hann kastar á þig
geislum.
Þarna sannaði framliðinn maður tilvist sína með því að
beina til min raunvísindalegri geislaskothríð. Eitthvað af ork-
unni hefur að sjálfsögðu hafnað í likamanum. Ég var orðinn
4