Morgunn


Morgunn - 01.01.1978, Side 53

Morgunn - 01.01.1978, Side 53
SKÝRSLA . . . 51 hann er í hverri lífveru, hann er í miðju sólkerfisins og í miðju liins takmarkaða efnisheims. Við höfum alls konar múra, sem vísindin eru smám saman að brjóta niður. Hljóðmúrinn hefur verið rofinn og einnig ljósmúrinn. En sjálfur tímamúrinn stendur enn af sér allar árásir. Hér er þvi haldið fram, að framliðnir menn hafi skotið geislum út í gegnum þennan tímamúr, þeir hafa skotið til okkar geislum að handan út til okkar, hér fyrir utan múrinn. Ef menn vilja setja fram leiðsögutilgátu um bústaði fram- liðinna manna hér undir sólinni, þá er upplagt að vitna i hugmynd Pyþagórasar um hliðstæðu jarðar á bak við sólina. Þar eru heimkynni framhaldslífsins. En hliðstæða jarðar eða hnöttur þessi er ekki aðeins á bak við sólina, hann er á bak við tímamúrinn í sólkerfinu og þessvegna sjáum við ekki þennan hnött. Við sjáum ekkert, sem er fyrir innan múrinn. En þennan hnött framhaldslífsins getum við nefnt Bláu eyj- una. Það er frægur hnöttur i spíritiskum fræðum. Bláa eyjan er einn af fylgihnöttum jarðar hér á jarðbrautinni en braut jarðar um sólu hét heimskringla að fornu, hún er hnatta- hjólið sem snýst um sólina, hverfanda hvel. Hin forna heims- mynd gerir ráð fyrir eyjum eða hnöttum bæði fyrir ofan og neðan jörð á heimskringlubrautinni. Þannig liggja tvær duld- ar brautir frá jörðu er heita helvegur og sólarvegur. Þessar tvær brautir eru að sjálfsögðu fyrir innan tímamúrinn. En það væri vantraust á getu raunvísinda ef menn ætla, að þau niuni ekki um siðir finna þessar hnattabrautir liinnar gömlu heimsmyndar. Þessi hugmynd hefur þann kost, að hún gerir ráð fyrir að íramliðnir menn búi hér á heimskringlubraut jarðar og á hnetti eins og við og einnig undir sömu sól og við. Það ræður af líkum, að ef framliðnir menn búa hér á hnetti undir sörnu sol og við, þá geta þeir hagnýtt sólarorkuna. Og það kann að vera auðveldara fyrir þá en okkur. Sólarorkan kann að flæða inn í gegnum þann múr, sem hér er nefndur tímamúr- ínn. Nafnið á hnetti þeim, sem nefndur er Bláa eyjan bendir einmitt til þess að svo sé. Nafnið mun vera dregið af því, að

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.