Morgunn - 01.01.1978, Page 58
56
MORGUNN
Þeir, sem kynntust Þórði Sveinssyni, töldu hann sérsta'ðan
persónuleika og vafalaust teljum við flest okkar foreldra okk-
ar að einhverju leyti sérstæða persónuleika umfram aðra. í
því nútíma þjóðfélagi, sem við lifum í er það af, sem áður
var, ja aðeins fyrir 3—4 áratugum, að fjölskyldan væri sam-
an komin kvökl eftir kvöld og kynntist þannig betur en í dag,
því þá var hvorki sjónvarp, útvarp né aðrir fjölmiðlar til þess
að glepja eins fyrir. Þá var ekki heldur jafn auðvelt að hitta
kunningjana og nú er orðið. Ein þannig var þetta að verða,
þegar ég var að vaxa úr grasi, að maður gaf sér naumast tima
til þess að vera hjá foreldrum sínum og spjalla við þá, og það
er þannig skoðun mín, að mér hefði ekki auðnast að kynnast
foreldrum mínum, sérstaklega ekki föður mínum, eins ræki-
lega og raun varð á, nema af því, að þegar ég var tvítugur,
þá fékk ég augnsjúkdóm svo alvarlegan, að ég varð blindur
um skeið og va.'ð að halda mig innan dyra í nærri eitt og hálft
ár. Faðir minn var þá orðinn svo farlama, vegna lærbrots, að
hann gat ekki farið úr stól sinum nema með hjálp, þannig
að við þær aðstæður iilaut ég að kynnast föður mínum miklu
meira en ella, svo að þessi alvarlegi augnsjúkdómur varð mér
á vissan hátt blessun, því ekki vildi ég hafa farið á mis við
það að kynnast og læra af reynslu mér reyndari og greindari
manns.
f viðræðum sem við þá áttum, kom það hvað eftir annað
fram, að það var sannfæring Þórðar Sveinssonar, að endur-
holdgun væri lögmál, þ. e. að menn kæmu aftur og aftur til
jarðvistar. Hins vegar taldi hann ekki vogandi að halda þessu
fram almennt, því að þeir menn yrðu álitnir skritnir eða jafn-
vel ekki með öllum mjalla, sem þannig hugsuðu. — Og þó
er það svo, að sennilega eru það næstum % hlutar af mann-
kyninu, sem hefur þessa trú, og í sjálfu sér getur slík trú ekki
skaðað nokkurn.
Dulrænir hæfileikar Þórðar Sveinssonar voru á vitund
margra samtima manna hans og hefur stundum verið vitnað
til þeirra á prenti, svo sem af Þórbergi Þórðarsyni, Jónasi