Morgunn


Morgunn - 01.01.1978, Síða 59

Morgunn - 01.01.1978, Síða 59
YFIRSKILVITLEG REYNSLA 57 Þorbergssyni o. fl. Þessir hæfileikar lýstu sér í því að hann gat ráðið draumförum sínum eða stjórnað ferð sinni utan lík- amans. I endurminningum sínum segir séra Jón Auðuns á skemmtilegan hátt frá því er hann hitti Þórð utan líkamans í draumheimi. Jónas Jónsson frá Hriflu notaði dulræna hæfi- leika Þórðar sem efnivið í sögu í stjórnmálabaráttu sinni, er hann líkti Bændaflokknum við mann, sem var löngu látinn, en hitti Þórð Sveinsson á götu og kvartaði yfir því við hann, að nú væru allir gömlu félagarnir hættir að heilsa sér. Þórði átti þá að hafa orðið að orði: „Það er ekki von, því þú ert dá- inn.“ Við það hvarf sýnin. .Tónas frá Hriflu taldi, að Bænda- flokkurinn þyrfti að mæta svo skyggnum manni sem Þórði því flokkurinn væri dáinn, enda þótt hann héldi áfram að telja sig vera á lífi. Mér er minnisstætt atvik frá árinu 1931: Þeir Sigurður heitinn Jónasson, þá bæjarfulltrúi, síðar forstjóri Tóbaks- einkasölu rikisins og faðir minn voru þá orðnir miklir mátar. En faðir minn var þá endurskoðandi bæjarreikninga auk að- alstarfs síns, og var spiritismi eða trú á framhaldslíf sameig- inlegt hugðarefni þeirra. Þá var hér á ferð mjög fræg erlend spákona, á vegum Sigurðar Jónassonar. Lét faðir minn fyrir orð Sigurðar tilleiðast að láta hana spá fyrir sér. Föður mín- um þótti það hin mesta fjarstæða, sem fyrir honum var spáð, og spaugaði mikið með það. En spáin var sú, að hann ætti eftir að koma fram í Bandaríkjunum og vekja eftirtekt. Þótti föður mínum hvort tveggja jafn óhugsandi. Tveim til þrem- ur árum síðar var amerískur geðlæknir hér á ferð, sem faðir minn hafði staðið í bréfaskiptum við. Erindi geðlæknisins var sérstaklega að reyna að fá föður minn til þess að reyna að koma fram í gegnum miðil í Kaliforníu en læknirinn vissi um dulræna hæfileika hans og það varð úr, að tilraun þessi var gerð og mér minnisstætt, að það var um miðjan dag, sem faðir minn lagði sig til svefns til þess að koma fram i gegnum miðil í Kaliforníu. —- Og þessi tilraun tókst, sem sagt honum lókst að sanna sig fyrir fundarmönnum á þessum miðilsfundi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.