Morgunn


Morgunn - 01.01.1978, Page 69

Morgunn - 01.01.1978, Page 69
RITSTJÓRARABB 67 upplýsingum sem fram hafa komið á miðilsfundum. Miðill- fnn léki sér einungis að því að lesa upplýsingar úr hugum ýmissa fundarmanna. Felast að vísu í því miklar viðurkenn- ingar á merkilegum hæfileikum miðla, því ekki gengu til- raunir vísindanna sjáffra svo auðveldlega. En það er alltaf að sýna sig, að þessar skýringar duga ekki, eins og í tilfellinu, sem greint er frá hér að framan. Hér koma fram upplýsingar, sem fundarmaðui' neitar að geti verið réttar, og veit ekki til annars en þær séu beinlínis rangar. Þessar upplýsingar verða þvi ekki sóttar í hug hans, hvaðan sem þær eru komnar, en þær reynast réttar þegar móðirin er spurð. Huglestur dugar skammt til skýringa á mörgu sem fram kemur á miðilsfundum, eins og þeir vita bezt sem reynt hafa. Enda eru oft uotaðir fulltrúar fyrir ákveðna aðila á slikum huidum, sem ekkert vita um aðstæður þess, sem boðunum er beint til og geta þvi einungis tekið við þeim. Sögumaður minn gerði samning við móður sína um það, að hvort þeirra sem dæi fyrr skyldi reyna að láta hitt vita um framlíf sitt, ef til væri. Móðir hans sannaði sig. Móðir sögumanns dó 1958. Mánuði síðar birt- ist hún syni sínum með þeim hætti, að hann hefur síðan ekki verið í minnsta vafa um það að hún er enn lifandi, þótt á öðru sviði sé. Sögumaður sagði mér að hann hefði haft veikan maga og °H fundið til óþæginda af þeim sökum. Á fundunum hjá Láru kvaðst hann hafa fengið bót þess sjúkdóms. Síðar fluttist Lára norður í land og gat hann þá ekki sótt fleiri fundi hjá henni, en þá taldi hann hafa verið oft afar merkilega, einkanlega að því er snerti likamninga, sem hann kvaðst hafa séð myndast fyrir augum sínum. Og hann var vel á verði, því allt sem hann sá gerðist eftir að upp komst um svik hjá henni á erfiðu Þmabili i ævi hennar. Nokkrum árum síðar tók hann aftur að finna fyrir óþæg- lndum i maga, og greip þá til þess ráðs að leita lækninga hjá Hagnhildi Gottskálksdóttur í Tjarnargötu í Reykjavík, sem

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.