Morgunn


Morgunn - 01.01.1978, Page 91

Morgunn - 01.01.1978, Page 91
RADDIR LESENDA 89 læra vélvirkjun i Vélsmiðju Þorsteins Steinssonar i Vest- mannaeyjum. Til min kemur kunningi minn í smiðjuna og biður mig um að gera við smáhlut, sem ég er nú búinn að gleyma hver var. En kunningja minum lá á þessu og lofaði ég að gera þetta svo fljótt sem ég gæti, og talaðist svo til milli okkar að hann kæmi seinna um daginn að sækja hlutinn og ef ég yrði ekki við þeffar hann kæmi, mundi ég láta hlut þennan á ákveðinn stað í gluggakistu í smiðjunni. Nú hður að kvöldi og þá kemur þessi kunningi minn og spyr mig hvort ég sé ekki ennþá búinn að þessu. Jú, ég held nú það og þetta sé héma, eins og um var talað og fer að glugganum og ætla að grípa hlutinn, en þá er hann bara ekki í glugganum, þar sem ég hafði látið hann. Ég varð nú meira en lítið hissa, bvi að ég hafði verið þarna inni allan daginn cg unnið við borð, sem var nndir umrædd- um glugga og hafði gefið hlutnum auga öðru hvcru, svo að eg var viss um að hafa látið hann þar. Nú, fyrstu viðbröo-ð voru þau að ég fer nú samt að leita þarna i kring og finn ekki hlutinn, svo allt í einu er mér litið i rrlugp-ann og bá er hluturinn þar og auðvitað sáum við hann báðir, þótt, hvorugur hefði séð hann fáum augnablikum áður. Það skal tekið fram, að ég komst að þeirri niðurstöðu við at'hugun, að hér væri ekki um neina hrekki að ræða frá hendi vinnufélaga minna. Nú er það spumingin: Hvað var það sem gerðist? Hvernig stóð á þessu? En úr því að ég er byrjaður að skrifa á annað borð, langar rnig að minnast á annað mál, en það snvr að félagsfundunum sjálfum. Ég hef setið flesta fundi í nokkur ár og hef haft mikla anægju af að njóta þess, sem fram hefur verið reitt, bæði eru þetta að mínu mali oft frábær erindi um forvitnileg efni og enis myndasýningarnar, sem stundum hafa verið, svo og það spjall fundargesta við frummælendur. Af þessu öllu hef ég haft mikla ánægju.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.