Morgunn - 01.01.1978, Page 92
90
MORGUNN
En stundum hefur vaknað hjá mér sú spurning, sem ég
hef ekki haft uppburði í mér að koma á framfæri munnlega,
en mun nú gera það skriflega.
Þær myndir af yfirskilvitlegum atburðum, sem sýndar hafa
verið eru að ég held allar erlendis frá. En mér skilst að tekin
hafi verið kvikmynd hér heima af merkilegu rannsóknarefni
°g á ég þar við myndina af Reyni Leóssyni.
Það kannski sannast hér að enginn sé spámaður i sínu föð-
urlandi. — En spurning mín er þessi: Væri ekki hægt að fá
þessa mynd eða hluta úr henni og sýna á fundi og fjalla síðan
um hana á eftir? Ég minnist þess ekki að um Reyni Leósson
hafi verið fjallað á þeim fundum sem ég hef setið, þó má það
vera. Þetta væri gaman að heyra um.
Nú vil ég taka það fram, að ég er ekki meðlimur i S.R.F.I.,
og á því kannski ekki að skipta mér af málum þessum. En við
fundarsetu hef ég notið konu minnar, sem er i félaginu.
Virðingarfyllst,
Benedikt Sigurjónsson, Sogavegi 117.
Svar: Þakka Benedikt þetta ágæta bréf, einnig ábendinguna
i sambandi við kvikmynd af Reyni Leóssyni. Þetta mál er
verið að rannsaka. — Æ.R.K.