Morgunn


Morgunn - 01.01.1978, Page 93

Morgunn - 01.01.1978, Page 93
FRÉTTABRÉF Aðalfundur Sálarrannsóknafélags Islands var haldinn 5. apríl 1978 og var kosin stjórn, sem hefur skipt með sér verk- um sem hér segir: Ævar R. Kvaran, forseti, örn Guðmunds- son, varaforseti, Erla Tryggvadóttir, gjaldkeri, Aðalheiður Friðþjófsdóttir, ritari og Helga Einarsdóttir, meðstjórnandi. I varastjóra sitja Birna Halldórsdóttir, Geir Tómasson, Guð- mundur Einarsson, Þóra Hallgrímsson og Þorgrímur Þor- grímsson. Síðastliðinn vetur hafa félagsfundir verið haldnir fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, nema fyrsti félagsfundur sem haldinn var 29. september í Langholtskirkju og helgaður minn- mgu Hafsteins Björnssonar, miðils, sem lézt 15. ágúst 1977. Fundurinn hófst og endaði á söng, sem einnig var milli ræðna, en ræðumenn voru (í þeirri röð, sem þeir fluttu ræður sínar): Ævar R. Kvaran, Guðmundur Jörundsson, Eiríkur Pálsson og Guðmundur Einarsson. — Söngflokkurinn, sem söng var hinn sami og söng við útför Hafsteins. Á nóvembei tundi flutti Ævar R. Kvaran erindi um Áhrif eiUfharvissunnar á lífsviðhorf. I desember flutti séra Þórir Stephensen erindi, sem hann kallaði: Sálarrannsóknir og mín eigin trú. Á janúarfundi flutti örn Guðmundsson erindi og syndi glærur, Hörður Sigurðsson flutti erindi um „svæðameð- ferðina“ i febrúar og á marzfundi flutti Árni Óla erindi: Vís- indi og sálarlíf. Innlendir miðlar. Hjá félaginu störfuðu tveir lækninga- miðlar, Unnur Guðjónsdóttir, sem starfaði allt árið og starfar enn og Jóna Rúna Kvaran, sem starfaði fram í september. Jóna Rúna Kvaran hyrjar aftur að starfa hjá félaginu í maí. Unnur fór einnig til Isafjarðar og Sauðárkróks og starfaði þai'.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.