Morgunn - 01.12.1979, Qupperneq 10
88
MORGUNN
Þetta fólk sér í sýnum látna ættingja og vini. Það sér trúar-
legar persónur. Það sér ójarðneskt umhverfi sem einkennist
af birtu, fegurð og mjög sterkum litum. Og þessari reynslu
fylgir algjör breyting á líðan viðkomandi. Þessum sýnum fylgja
ró, friður, upphafning og trúarlegar tilfinningar. Sjúklingarnir
hljóta fagran dauða þvert á móti hinni venjulegu deyfð, drunga
og ömurleika sem almennt er búist við þegar fólk deyr. Það er
athyglisvert um þá, sem ekki sjá neinar sýnir, að þeir verða
engu síður varir við þessa stórkostlegu breytingu á líðan sinni,
sem meðal annars lýsir sér í því að sársauki og þjáning hverfur.
Yfirskilvitleg reynsla deyjandi fólks er vitanlega ekkert ný-
mæli. Hér er um forna reynslu deyjandi fólks að ræða. En
sökum hinna almáttugu vísinda og ótta við að slíkt yrði talið
annað hvort til geðveiki eða ofsjóna hefur fólk vafalaust leynt
þessu og reynt að láta ekki á því bera. En nú verður ekki lengur
um þetta þagað, hvort sem það brýtur í bág við aldagamlar
kenningar vísinda eða ekki. Læknar hafa orðið svo mikils vis-
ari í þessum efnum, að þeir geta ekki lengur orða bundist. Enda
er það ekki nema sjálfsagt, ef menn vilja þá ekki leyna sann-
leikanum vísvitandi.
Árið 1977 kom út í New York hók, sem vakti mikla athygli
og ber nafnið AT THE HOUR OF DEATH (Á dauðastund).
Höfundar þessarar bókar eru tveir, og er mér sérstakt ánægju-
efni að geta tekið það fram, að annar þeirra er íslendingur.
Bókin er eftir þá dr. Karlis Osis, sem er meðal kunnustu sálar-
rannsóknamanna Bandarikjanna og rannsakaði meðal annars
hæfileika Hafsteins Bjömssonar, og dr. Erlend Haraldsson,
sem þegar hefur skrifað mjög athyglisverða bók um könnun á
dulrænni reynslu Islendinga, trúarviðhorfum og þjóðtrú, sem
her nafnið ÞESSA HEIMS OG ANNARS.
Það er þegar orðið nokkuð siðan dr. Karlis Osis fór að fá
vaxandi áhuga á því sem fólk sér og segir á banaheði. Árið
1966 kom út bók eftir hann í Bandaríkjunum um rannsóknir
hans á þessum efnum, og vakti hún mikla athygli. En fyrsta
þess háttar könnun drs. Osis var þó gerð 1959—60 samkvæmt
ósk Parapsychology Foundation. En árið 1972 féklc hann styrk